Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann á Akureyri í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Maðurinn gekk samkvæmt ákæru ítrekað í skrokk sambýliskonu sinnar, sneri upp á handlegg hennar, sparkaði í hana, kýldi hana í kviðinn, skallaði hana ítrekað í andlitið og dró hana á hárinu svo hár losnaði af höfði hennar. Þá hótaði hann henni lífláti og misþyrmdi sambýliskonunni að viðstöddum ungum börnum þeirra.
Sex lögreglumenn fóru á vettvang þegar fyrri brotin áttu sér stað, í janúar árið 2012. Þá hafði konan reynt að flýja heimilið með tvö ung börn klukkan fjögur að nóttu en maðurinn þá sturlast. Vitni urðu að slagsmálunum og ofbeldismaðurinn var látinn sæta nálgunarbanni. Degi síðar fór sambýliskonan fram á að að nálgunarbanni yrði aflétt og sagðist ekki ætla að kæra. Áverkavottorðs var ekki aflað af hálfu lögreglu í þetta skipti og sum vitni skoruðust undan því að gefa skýrslu fyrir dómi.
Síðari misþyrmingin átti sér stað í júní sl. Aðstæður voru þá svipaðar og í fyrra tilvikinu. Börn hágrátandi á heimilinu meðan maðurinn hótaði lífláti og kvaldi konuna. Vitni báru að maðurinn hefði dregið sambýliskonu sína á hárinu. Hann var vistaður í fangaklefa lögreglustöðvarinnar a Akureyri en látinn laus kvöldið eftir að lokinni yfirheyrslu. Manninum var vísað burt af heimili sínu tímabundið.
Af dómskjölum má ráða að maðurinn hafi beitt sambýliskonu sína ofbeldi um langt skeið. Um ákærðu brotin segir: „Athæfi ákærða var fólskulegt, en atlaga hans gegn brotaþola, sem tengdist henni fjölskylduböndum, beindust m.a. að höfði hennar. Að auki voru tvö ung börn þeirra á vettvangi er atvik gerðust.“
Segir einnig að dráttur á dómsmeðferð innan kerfisins skýri að hluta hvers vegna refsingin skuli skilorðsbundin.











