Akureyskar íþróttakonur á alþjóðlegu móti í London

Birna Blöndal og Arnþrúður Helgadóttir

Tveir íþróttamenn frá Crossfit Hamri, Birna Blöndal Sveinsdóttir og Arnþrúður Eik Helgadóttir, lögðu um síðustu helgi land undir fót og kepptu fyrir hönd Crossfit stöðvarinnar á leikunum „Battle of London” sem haldin var í hinni margfrægu Koparhöll, þeirri sem hýsti körfuboltakeppnina á Ólympíuleikunum í borginni árið 2012. Þetta var annað mótið þeirra á erlendri grundu. Þær kepptu einnig í liðakeppni á evrópumótinu árið 2013.

Þegar akv.is náði tali af Birnu Blöndal eftir mótið var hún nokkuð ánægð með árangurinn. „Markmið okkar var að komast í gegnum fyrsta niðurskurðinn. Við náðum að komast í gegnum þann niðurskurð og einnig þann næsta. Við duttum út í þriðja og síðasta niðurskurði, sem verður að teljast nokkuð gott á svo sterku móti.” Segir Birna.

Umgjörðin um þetta mót var rosa flott, haldið í höllinni sem hýsti körfuboltann a Ólympíuleikunum 2012. Allir þarna voru i svakalegu formi, og í raun var rosalega flott að við hefðum komist inn á þetta mót með ekki meiri keppnisreynslu en þetta’’

Keppt var í 7 mismunandi greinum yfir tvo daga. Þrjár greinar háðar fyrri daginn en fjórar seinni daginn. Greinarnar, eða WOD, eins og þær kallast á Crossfit máli (Workout Of the Day), reyna á alla hluti líkamlegs atgervis s.s. styrk, þol, snerpu og úthald. Um 250 keppendur víðsvegar að kepptu á þessum leikum. Norðlensku keppendurnir stóðu sig með mikilli prýði. Þær Arnþrúður Eik og Birna bættu sig báðar nokkuð. Af 100 konum sem kepptu á leikunum lenti Arnþrúður Eik í 41. sæti og Birna í 43. sæti.

Arnþrúður með ketilbjöllu í hönd

Þegar Birna var spurð um framhaldið var ekki nokkurn bilbug henni að finna: „Við stefnum klárlega á fleiri mót og á kortinu núna er undirbúningur fyrir opið mót sem hefst i lok feb, þar framkvæmum við 5 æfingar og að móti loknu komast 48 efstu konur og karlar i evrópu áfram á evrópuleikana sem eru í maí. En draumurinn er auðvitað að komast inn á sem flest mót sem einstaklingur og halda afram að bæta sig”

Ljóst má vera af þessari keppni að Crossfit er í stórsókn á Íslandi. Alþjóð veit af afrekum Annie Mistar Þórisdóttur til dæmis. Á þessum leikum í London náðu fjórar íslenskar konur í efstu 10 sætin á mótinu.

 

Battle of London

 

Skógræktarmenn horfa til Húsavíkur

Áhugamenn um skógrækt á Íslandi horfa til þess að PCC verksmiðja á Bakka á Húsavík gæti þurft mikið magn af viði úr íslenskum nytjaskógum. Pétur Halldórsson sem starfar hjá Skógrækt ríkisins segir að ... Lesa »

Lof og last vikunnar

Lof og last vikunnar

Lof fær íslenska handboltaliðið fyrir frábæra frammistöðu á Evrópumótinu, skrifar karl á Akureyri í bréfi til blaðsins. Hann segir að strákarnir okkar vinni iðulega þrekvirki með því að skemmta ... Lesa »

Hver er traustsins verður?

Sveitarstjórnamál snúast um lífsgæði íbúa. Ólík stjórnmálaöfl hafa ólíka sýn á hvernig á að horfa til framtíðar og hvaða hluti á að leggja mesta áherslu á að byggja upp. Ólík sýn á samfélagið er ... Lesa »

Hús vikunnar: Strandgata 35

Í síðustu viku tók ég fyrir Strandgötu 45 en nú færum við okkur spölkorn upp eftir Strandgötunni, nánar tiltekið að númer 35 en þar stendur annað glæsilegt stórhýsi. Húsið er eitt af elstu húsum ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Passíusálmar unga fólksins

Fátt er svo með öllu illt að ei boði nokkuð gott. Sumarið sem ég var 19 ára vann ég við ferðaþjónustuna á Hólum í Hjaltadal, það var fjörlegt sumar, mörg ungmenni að störfum og þar á meðal þýsk stúlka ... Lesa »

Akureyskar íþróttakonur á alþjóðlegu móti í London

Tveir íþróttamenn frá Crossfit Hamri, Birna Blöndal Sveinsdóttir og Arnþrúður Eik Helgadóttir, lögðu um síðustu helgi land undir fót og kepptu fyrir hönd Crossfit stöðvarinnar á leikunum „Battle of ... Lesa »

Norðurorka

Stórfjölgun rafbíla breytir engu um metanáform Norðurorku

Nýskráningum rafbíla fjölgaði um 258 prósent á síðasta ári miðað við árið 2011 á sama tíma. Sala á nýjum metanbílum dróst saman um 64 prósent á sama tímabili. Bifreiðum sem var breytt í metanbíla ... Lesa »

60 tonn af salti eru borin á akureyrskar götur

Aðalfundur Bifreiðastöðvar Oddeyrar ehf hefur samþykkt ályktun þar sem bílstjórar á BSO mótmæla saltaustri á götum bæjarins. „Við teljum að þetta sé ekki til bóta á nokkurn hátt, að þetta henti ekki ... Lesa »

Bærinn verði vistvænni og manneskjulegri

Skiptar skoðanir eru meðal bæjarbúa um hvort hita eigi áfram upp kirkjutröppurnar. Þar tekst á kostnaður og réttindi gangandi fólks, hagsmunir ferðamennsku hafa einnig verið nefndir. Logi Már ... Lesa »

Jón Óðinn Waage pistlahöfundur skrifar

Kúlið

Ég er kominn á sextugsaldur. Mér líður vel með það, ég segi alltaf að maður sé jafn gamall og maður ákveður, það þurfi bara að gæta sín á því að fara ekki að láta sér þykja leiðinlegir hlutir ... Lesa »

Flutningar milli leikskóla snúist um peninga og persónupólitík?

Faðir drengs sem þarf að flytja nauðugan milli leikskóla gagnrýnir þá ákvörðun harðlega. Drengurinn hans hefur verið á sama leikskólanum, Álfasteini, frá upphafi sem tilheyrir Hörgárbyggð en er nálægt ... Lesa »

Flótti verslana frá Akureyri ?

  Svo virðist sem verslunarstarfsemi á Akureyri eigi í vök að verjast. Fréttir hafa birst um fjölda plássa í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi sem standa auð. Verslanir annars staðar í ... Lesa »

Hafdís Sigurðardóttir er íþróttamaður Akureyrar 2013

  Kjöri íþróttamanns Akureyrar var lýst í verðlaunahófi á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og íþróttaráðs Akureyrarbæjar í Menningarhúsinu Hofi fyrr í dag (miðvikudag). Við sama tækifæri ... Lesa »

Refsistefnan gegn fíkniefnum hefur leitt til hörmunga

„Refsistefnan gegn fíkniefnum hefur ekki skilað þeim árangri sem henni var ætlað og hefur ekki leitt neitt annað af sér en hörmungar,“ segir Aðalheiður Ámundadóttir lögfræðingur sem lagt hefur áherslu ... Lesa »

heradsdomur

Skilorð eftir fólskulegt athæfi

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann á Akureyri í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Maðurinn gekk samkvæmt ákæru ítrekað í skrokk sambýliskonu sinnar, sneri upp á handlegg hennar, ... Lesa »

Björn Þorláksson

Verðmætasta fólkið

Þegar fyrsti blaðamannafundur fór fram í menningarhúsinu Hofi eftir að búið var að steypa húsið sögðu stjórnmálamenn, norðlenskir þingmenn, að það væri dapurlegt að sumir blaðamenn skrifuðu ekki bara ... Lesa »

Eining-Iðja fellir samninginn

Félagsmenn Einingar-Iðju sem starfa á almenna vinnumarkaðinum felldu nýjan samning við Samtök atvinnulífsins sem skrifað var undir þann 21. desember sl. Póstatkvæðagreiðsla á meðal félagsmanna lauk ... Lesa »

Ofbeldisfullur og drykkfelldur karlmaður í himnaríki

Jón var ofbeldisfullur, drykkfelldur, kvensamur karlfauskur sem hafði í ofanálag verið sauðaþjófur. Hann hreytir illindum í konu sína allt fram í andlátið –og reyndar lengur en það. Kerlingin, eins og ... Lesa »

Framsýn og Þingiðn felldu kjarasamninga

Talningu er lokið hjá Framsýn vegna tveggja kjarasamninga sem félagið á aðild að í gegnum tvö landssambönd, Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband íslenskra verslunarmanna. Einnig er talningu ... Lesa »

Arnljótur úr Ojba Rasta á Akureyri Backpackers í kvöld

Lifandi tónar á miðvikudögum á Akureyri Backpackers hafa notið nokkurra vinsælda upp á síðkastið. Flottir listamenn hafa stigið þar á stokk og skemmt fólki. Í kvöld ætlar Arnljótur úr Ojba Rasta að ... Lesa »

10. bekkur Dalvíkurskóla setur upp frumsamið verk

Nokkrir nemendur 10. bekkjar Dalvíkurskóla eru þessa dagana að setja upp frumsamið leikrit í samvinnu við Leikfélag Dalvíkur. Leikritið ber nafnið „Fáránlega fine’’. Leiklist er valfag í grunnskólanum ... Lesa »

Guðmundur Ármann sýnir í Populus Tremula 25. janúar

Guðmundur Ármann sýnir olíumálverk, vatnslitamyndir og þrívíð verk í Populus tremula. Sýningin, sem ber yfirskriftina Nærlönd, verður opnuð laugardaginn 25. janúar kl.14.00. Einnig verður hún opin ... Lesa »

Það besta fyrir börnin okkar

Senn líður að bæjarstjórnarkosningum og undirbúningur hjá okkur í VG er kominn á skrið. Á félagafundi þann 12. desember síðastliðinn var ákveðið að val á framboðslista færi fram á valfundi sem verður ... Lesa »

Sunnudagsmorgunn og Rúv: Sjónvarp allra landsmanna?

Síðustu misseri hefur tími minn farið í rannsóknir á dreifðum byggðum landsins. rannsóknir í byggðafræði eru um margt áhugaverðar og gaman að skoða í hvers konar landi við búum. Á Íslandi er ... Lesa »

Að vera barn í Sýrlandi

"Ég skal segja þér sögu mína. Hún byrjar með dauða tveggja sona minna. Það var skothríð í bænum og sprengjuárás. Báðir synir mínir létust. Stuttu seinna lést Amal, dóttir mín, af sömu orsökum. Um ... Lesa »

Skoða meira