Á fundi stjórnar fasteigna Akureyrarbæjar, föstudaginn 17. janúar, var lagt fram bréf frá Knattspyrnusambandi Íslands þar sem óskað var eftir framkvæmdaáætlun við gerð þaks á stúkuna við Þórsvöll. KSÍ hefur um tíu ára skeið unnið að leyfiskerfi UEFA í efstu deild til að bæta knattspyrnuíþróttina á öllum sviðum þess. Þórsvöllur hefur síðustu árin verið á undanþágu vegna þess að samkvæmt leyfiskerfinu verður ákveðið hlutfall stúku við völl að vera yfirbyggt.
Stjórn fasteigna Akureyrarbæjar svaraði því til KSÍ, að síðan árið 2004 hefði verið byggt upp fyrir knattspyrnuiðkun í bænum fyrir um rúma þrjá milljarða króna og reksturinn af þeim mannvirkjum sem bærinn rekur sé rúmlega 300 milljónir á ári, á verðlagi júnímánaðar árið 2013. Stjórn fasteigna Akureyrarbæjar benda á að engir samningar séu í gildi um byggingu stúku á Þórsvelli í framkvæmdaáætlun sem tímasett er til loka árs 2017.
Oddur Helgi Halldórsson, formaður stjórnar, telur að KSÍ verði að virða það við Akureyrarbæ að stúka sé ekki á dagskrá: ,,KSÍ ætti að gleðjast yfir þeim miklu framkvæmdum sem Akureyrarbær hefur staðið í varðandi knattspyrnuiðkun í bæjarfélaginu. Það er ekki á stefnuskránni að byggja stúku yfir Þórsvöll í náinni framtíð’’








