Gettu Betur lið Menntaskólans á Akureyri sigraði Menntaskólann á Tröllaskaga í 1. umferð keppninnar þann 18. jan sl. Úrslitin voru nokkuð afgerandi. Akureyringar unnu viðureignina 27-6 og eru þar að leiðandi komin í aðra umferð keppninnar. Þar verður mótherji menntskælinga lið Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Viðureignin hefst kl 21:00, sunnudaginn 26. janúar á rás 2.
Sigri lið Menntaskólans á Akureyri þá viðureign er ljóst að skólinn er kominn í átta liða úrslit, sem hefjast þann 31. janúar.
Menntaskólinn á Akureyri hefur þrisvar sinnum sigrað keppnina, síðast árið 2006. Eins og alþjóð veit hefur Menntaskólinn í Reykjavík unnið þessa keppni oftast.
Spyrill er Björn Bragi Arnarsson, spurningahöfundar og dómarar eru þau Margrét Erla Maack og Steinþór Helgi Arnsteinsson. Umsjónarmaður er Elín Sveinsdóttir.








