Í janúarmánuði er dimmt og álagið virðist mikið þegar bisað er við að opna augun á morgnana þegar sólin er fjarverandi. Það verður að viðurkennast að ég bíð í ofvæni eftir að sú gula mæti í vinnuna á sama tíma og ég þó svo að stjörnubjartur himinn hafi visst aðdráttarafl líka.
Í kvöld var ég með hópi kvenna í Breiðholtslaug sem lét hálkuna og myrkrið ekki aftra sér frá því að koma saman rétt fyrir háttatímann og stunda jóga í vatni. Í lok tímans lagið “Megi Eilífðarsól á þig skína” sungið í heita pottinum. Aðrir sundlaugargestir brostu og nokkrir bættust í hópinn. Aðliggjandi pottur bað mas. um endurtekningu.
Ég varð ekki vör við að það væri mjög dimmt á þeirri stundu. Ég var umkringd björtu fólki. Stundir eins og þessar sýna mér hversu fljótt myrkur getur breyst í ljós. Við eigum öll möguleikann á því að vera farvegur ljóss inn í eigið líf og annarra á örskotsstundu, því ljósið ferðast hratt en ekki hægt.
Ég er alltaf jafn heilluð af getu okkar til að umbreytast og finna hamingjuna og það bjarta þrátt fyrir allskyns kringumstæður. Það er mikill umbreytingarkraftur í fólki á Íslandi, líkt og í náttúrunni. Það sést best á því hversu fljót við erum að tileinka okkur nýjungar og virkja sköpunarkraftinn til að afla lífsviðurværis út í Norður-Atlandshafi.
Hugmyndir kvikna, verða að veruleika og skapa framtíð okkar og barnanna okkar ásamt því að móta umhverfi og náttúru.
Ég kenni og stunda jóga og hugleiðslu nánast á hverjum degi. Það snýst að miklu leyti um það að upplifa djúp tengsl við innri og æðri vitund, upplifa vellíðan og breyta myrkri í ljós hið innra. Það snýst einnig um það að fara úr einstaklingsvitund yfir í hópvitund því þá líður okkur vel, við myndum tengsl við annað fólk, móður jörð og tengjumst jafnvel alheimsvitund. Verðum meðvitaðri um tilveruna og opnum hjartað fyrir lífinu sjálfu.
Fólki líður alla jafna ekki vel nema það sé í tengslum við sjálft sig og aðra og helst hluti af einhverju stærra en það er.
Að láta sér annt um aðra lætur væntumþykju og góðvild vaxa í heiminum. Að láta sér annt um fólkið í Sýrlandi sem er kalt og stríðshrjáð með því að senda hlý föt lætur væntumþykju vaxa í þínu hjarta og í heiminum öllum. Ég hvet ykkur til að senda flík, kynnið ykkur málið hér. Sýnum hlýhug frá landi friðar.
Jógísk fræði segja að við höfum orkustöðvar (chakras) í líkamanum. Ein útskýringin er sú að það sé orkulegt hjól sem snýst og vinnur ma. úr tilfinningum og orku í mörgum víddum tilveru okkar.
Hjartastöðin er 4. orkustöð líkamans og er talin hafa sterkustu orkulega útgeislun af því sem er í líkamanum okkar, já hjartastöðin en ekki höfuðsvæðið þar sem við hugsum málið. Kærleikur og samhygð eru tilfinningar sem tengjast hjartastöðinni.
Fólk sem sýnir öðrum mikinn óskilyrtan kærleika er sagt hafa “stórt” hjarta og virðist vera mikið til í því út frá orkulegu sjónarmiði.
Ein leiðin af mörgum til að breyta myrkri í ljós er að sýna góðvild, þykja vænt um aðra og stíga inn í sinn mesta styrk, kærleikann.
Látum innra ljósið lýsa í myrkinu því eins og Einar Benediktsson orti:
“Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar.”
Eigið ljósfylltan janúar,
Arnbjörg Kristín
Jógískur ráðgjafi og Kundalini jógakennari
*Námskeið að hefjast 19. janúar á Akureyri sem nefnist Innri kyrrð og gleði
Meira um það á www.graenilotusinn.is








