Skilur ekki kröfu um rannsókn

Mynd af slysstað. Völundur Jónsson

Krafa hefur komið fram um að lögreglan á Akureyri hefji sjálfstæða rannsókn á hvað fór úrskeiðis 5. ágúst sl. þegar flugmaður og sjúkraflutningamaður létust þegar flugvél Mýflugs hrapaði að loknu neyðarflugi. Yfirmaður rannsóknareildar lögreglunnar, Gunnar Jóhannsson, segist ekki skilja þá kröfu.

Óháð eftirlitsstofnun sé að rannsaka málið. Áður hafi lögregla rannsakað flugslysið sjálfstætt en rannsókn hafi verið hætt 11. nóvember sl. enda hafi þá verið metið af hálfu ákæruvalds að frekari rannsókn myndi ekki leiða til sérstakrar málshöfðunar. Af ummælum lögreglu að dæma hefur í fjölmiðlaumfjöllun síðustu vikna ekki komið neitt nýtt fram sem hvetur lögreglu á Akureyri til að taka rannsóknina upp aftur.

Í fréttum hafa komið fram sjónarmið um að furðu sæti að lögregla hafi sem dæmi ekki rætt við Kristján Skjóldal, íbúa á Akureyri, en Kristján sagði m.a. sögu sína í fréttaskýringu á Stöð 2 í síðustu viku. Ástæða þess er að sögn yfirmanns rannsóknardeildar að búið var að ræða við tugi annarra vitna sem öll höfðu svipaða sögu að segja.

Yfirmaður rannsóknardeildar lögreglu bendir á að ef maður aki yfir á rauðu ljósi og valdi öðrum bana þurfi lögregla ekki að ræða við öll 50 vitnin að slysinu ef 10 fyrstu viðmælendur séu samhljóða í frásögn.annsóknarnefnd samgönguslysa mun skoða vinnuhætti Mýflugs fyrir slysið og fyrri atvik sem m.a. fyrrum fluglæknir í sjúkraflugi hefur gagnrýnt. Niðurstaðan getur haft áhrif á hvort aðstandendur höfði einkamál gegn fyrirtækinu.

-BÞ

heradsdomur

Skilorð eftir fólskulegt athæfi

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann á Akureyri í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Maðurinn gekk samkvæmt ákæru ítrekað í skrokk sambýliskonu sinnar, sneri upp á handlegg hennar, ... Lesa »

Björn Þorláksson

Verðmætasta fólkið

Þegar fyrsti blaðamannafundur fór fram í menningarhúsinu Hofi eftir að búið var að steypa húsið sögðu stjórnmálamenn, norðlenskir þingmenn, að það væri dapurlegt að sumir blaðamenn skrifuðu ekki bara ... Lesa »

Eining-Iðja fellir samninginn

Félagsmenn Einingar-Iðju sem starfa á almenna vinnumarkaðinum felldu nýjan samning við Samtök atvinnulífsins sem skrifað var undir þann 21. desember sl. Póstatkvæðagreiðsla á meðal félagsmanna lauk ... Lesa »

Ofbeldisfullur og drykkfelldur karlmaður í himnaríki

Jón var ofbeldisfullur, drykkfelldur, kvensamur karlfauskur sem hafði í ofanálag verið sauðaþjófur. Hann hreytir illindum í konu sína allt fram í andlátið –og reyndar lengur en það. Kerlingin, eins og ... Lesa »

Framsýn og Þingiðn felldu kjarasamninga

Talningu er lokið hjá Framsýn vegna tveggja kjarasamninga sem félagið á aðild að í gegnum tvö landssambönd, Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband íslenskra verslunarmanna. Einnig er talningu ... Lesa »

Arnljótur úr Ojba Rasta á Akureyri Backpackers í kvöld

Lifandi tónar á miðvikudögum á Akureyri Backpackers hafa notið nokkurra vinsælda upp á síðkastið. Flottir listamenn hafa stigið þar á stokk og skemmt fólki. Í kvöld ætlar Arnljótur úr Ojba Rasta að ... Lesa »

10. bekkur Dalvíkurskóla setur upp frumsamið verk

Nokkrir nemendur 10. bekkjar Dalvíkurskóla eru þessa dagana að setja upp frumsamið leikrit í samvinnu við Leikfélag Dalvíkur. Leikritið ber nafnið „Fáránlega fine’’. Leiklist er valfag í grunnskólanum ... Lesa »

Guðmundur Ármann sýnir í Populus Tremula 25. janúar

Guðmundur Ármann sýnir olíumálverk, vatnslitamyndir og þrívíð verk í Populus tremula. Sýningin, sem ber yfirskriftina Nærlönd, verður opnuð laugardaginn 25. janúar kl.14.00. Einnig verður hún opin ... Lesa »

Það besta fyrir börnin okkar

Senn líður að bæjarstjórnarkosningum og undirbúningur hjá okkur í VG er kominn á skrið. Á félagafundi þann 12. desember síðastliðinn var ákveðið að val á framboðslista færi fram á valfundi sem verður ... Lesa »

Sunnudagsmorgunn og Rúv: Sjónvarp allra landsmanna?

Síðustu misseri hefur tími minn farið í rannsóknir á dreifðum byggðum landsins. rannsóknir í byggðafræði eru um margt áhugaverðar og gaman að skoða í hvers konar landi við búum. Á Íslandi er ... Lesa »

Að vera barn í Sýrlandi

"Ég skal segja þér sögu mína. Hún byrjar með dauða tveggja sona minna. Það var skothríð í bænum og sprengjuárás. Báðir synir mínir létust. Stuttu seinna lést Amal, dóttir mín, af sömu orsökum. Um ... Lesa »

MA áfram í Gettu betur

Gettu Betur lið Menntaskólans á Akureyri sigraði Menntaskólann á Tröllaskaga í 1. umferð keppninnar þann 18. jan sl. Úrslitin voru nokkuð afgerandi. Akureyringar unnu viðureignina 27-6 og eru þar að ... Lesa »

Íþróttamaður Akureyrar 2013 krýndur á miðvikudag

Íþróttabandalag Akureyrar boðar til verðlaunahátíðar í Menningarhúsinu Hofi miðvikudaginn 22. janúar kl. 17.00 þar sem lýst verður kjöri íþróttamanns Akureyrar 2013. Jafnframt fá þeir íþróttamenn sem ... Lesa »

Sædís Ingimarsdóttir

Sorgleg samskipti á vefnum

Ég man þegar maður var yngri og engir gemsar voru til, engar tölvur, enginn var að endalausu Snappi þegar börnum leiddist og krakkar fóru út og léku sér. Fóru í feluleik, fallin spíta, húla hopp, ... Lesa »

Gullna hliðið ,,Sló í gegn’’: Viðtal við Jóhönnu Völu Höskuldsdóttur

„Frumsýning Gullna hliðsins sló í gegn í gærkvöld, gestir risu úr sætum og klöppuðu Völu og öllum öðrum lof í lófa’’ sagði ánægður leikhúsgestur eftir frumsýningu Gullna hliðs Davíðs ... Lesa »

Skilur ekki kröfu um rannsókn

Krafa hefur komið fram um að lögreglan á Akureyri hefji sjálfstæða rannsókn á hvað fór úrskeiðis 5. ágúst sl. þegar flugmaður og sjúkraflutningamaður létust þegar flugvél Mýflugs hrapaði að loknu ... Lesa »

Úr myrkri yfir í ljós

Í janúarmánuði er dimmt og álagið virðist mikið þegar bisað er við að opna augun á morgnana þegar sólin er fjarverandi. Það verður að viðurkennast að ég bíð í ofvæni eftir að sú gula mæti í vinnuna á ... Lesa »

Curver Thoroddsen með sýningu í Ketilhúsinu

Sjónlistamiðstöðin heilsar nýju ári laugardaginn 18. janúar kl. 15.00 þegar Curver Thoroddsen opnar sýninguna Verk að vinna / Paperwork í Ketilhúsinu á Akureyri. Þar stendur listamaðurinn fyrir ... Lesa »

Hús vikunnar: Strandgata 45

Það er vel við hæfi að fyrsta Hús vikunnar á árinu 2014 eigi stórafmæli á nýju ári . En Strandgata 45 er byggð árið 1914 og er því 100 ára í ár. Það er líkast til fyrsta stóra steinsteypuhús á ... Lesa »

Stúkuþak í fyrsta lagi á dagskrá árið 2018

Á fundi stjórnar fasteigna Akureyrarbæjar, föstudaginn 17. janúar, var lagt fram bréf frá Knattspyrnusambandi Íslands þar sem óskað var eftir framkvæmdaáætlun við gerð þaks á stúkuna við Þórsvöll. KSÍ ... Lesa »

Silja Björk

Íslenska gægjufýsnin

Eins og það getur nú verið fallegt að búa á Fróni og eiga ættingja í hverjum firði, getur þessi nánd einnig orðið að hægvirkandi eitri á þjóðarsálina. Við Íslendingar erum oft ákaflega forvitin og ... Lesa »

Ber fullt traust til Mýflugs

Sigurður E. Sigurðsson, læknir á FSA sem hefur verið viðriðinn sjúkraflugið frá því það komst í núverandi form, segist bera fullt traust til Mýflugs. „Ég hef ekki orðið vitni að neinni áhættuhegðun ... Lesa »

8 karlar og 3 þrjár konur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

átta karlar og þrjár konur hafa boðað þátttöku sína í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri til sveitarstjórnarkosninganna í vor. Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, sem ... Lesa »

Björn Þorláksson

Almannagæði í almenningseigu

Umhverfisstofnun hefur gefið út stöðuskýrslu um vatnasvæði á Íslandi. Þar segir að Ísland sé auðugt af vatni og almennt talið að ástand vatns sé gott. Ennþá. Miklu máli skipti fyrir viðskipti, ímynd ... Lesa »

Sleðahundakeppni í Kjarnaskógi um helgina

Hin árlega Sleðahundakeppni Icehusky fer fram í Kjarnaskógi, Naustaborgum og Hömrum, laugardaginn 18. janúar. Alls eru 15 lið skráð til keppni auk 6 liða í barna- og unglingakeppni. Icehusky er félag ... Lesa »

Skoða meira