Það er vel við hæfi að fyrsta Hús vikunnar á árinu 2014 eigi stórafmæli á nýju ári . En Strandgata 45 er byggð árið 1914 og er því 100 ára í ár. Það er líkast til fyrsta stóra steinsteypuhús á Oddeyrinni og með þeim fyrstu á Akureyri. Húsið er einlyft á háum kjallara, raunar svo háum að jafnvel mætti tala um að húsíð sé tvílyft. Ris er hátt og portbyggt og má segja að ris sé tvílyft því manngengt loft er yfir rishæð.
Krosspóstar eru í gluggum og eru steyptir rammar utan um gluggana en það er nokkuð áberandi á allra elstu steinhúsunum. Húsið og hefur nokkuð dæmigert „timburhúsalag“ en fyrstu steinhúsin voru yfirleitt svipuð að lögun og timburhúsin höfðu verið. Það var svo á árunum uppúr 1920 sem menn fóru að prófa sig áfram með sérstaka byggingarstíla í steinsteypunni. En þetta hús, sem var mikið stórvirki fyrir einni öld og er enn eitt stærsta hús við Strandgötuna reistu þau Einar Einarsson og Guðbjörg Sigurðardóttir.
Ári seinna, 6.júní 1915 var Íþróttafélagið Þór stofnað í þessu húsi af nokkrum ungum mönnum. Áttu þeir athvarf þarna hjá frú Guðbjörgu sem kölluð var „móðir Þórs“- ekki amalegur titill það! En flestir tengja Þór auðvitað við Glerárþorp eða Þorpið enda hafa höfuðstöðvar Þórs verið þar um áratugaskeið. En gegnum tíðina hafa Þórsarar verið áberandi á Eyrinni og hefur það verið mín tilfinning að þar sé tiltölulega jafnt hlutfall Þórsara og KA-manna en höfuðvígi þeirrar síðarnefndu er auðvitað Brekkan og Innbærinn.
Húsið hefur líkast til verið parhús frá upphafi og nú eru fjórar íbúðir í húsinu, tvær í hvorum hluta á hæð og í risi og tvær í sínum helmingi kjallara. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús en þó gæti ég alveg ímyndað mér að einhver verslun eða starfsemi hafi verið í kjallaranum. Strandgata 45 er stórt og reisulegt hús og er að mestu leyti óbreytt frá fyrstu gerð. Húsið stendur vel fyrir sínu í þessari glæsilegu húsaröð við Strandgötuna og hefur sjálfsagt alla tíð verið vel við haldið og er í frábæru standi.
Heimildir: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri.
Steindór Steindórsson (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.






















