Leikfélag Hörgdæla frumsýnir á fimmtudagskvöldið, 28. febrúar, leikverk um Djáknann á Myrká sem Jón Gunnar Th. samdi og leikstýrir. Tónlistin er eftir Skúla Gautason og er samin sérstaklega sýninguna.
„Þarna er á ferðinni klassísk ástar- og draugasaga sem gerist í Hörgárdalnum. Djákninn átti í tygjum við stúlku eina er Guðrún hét og kom hún frá Bægisá. Djákninn hafði boðið Guðrúnu til jólagleði en …,“ eins og segir í tilkynningu frá leikfélaginu.
17 leikarar auk hljóðfæraleikara eru á sviði í sýningunni en alls hafa yfir 40 manns komið að uppsetningunni. Leikarahópurinn samanstendur af góðri blöndu af vönum og óvönum, nýjum og gömlum andlitum og eru á öllum aldri. Æfingar hafa staðið yfir síðan fyrir jól og nú er komið að því að áhorfendur fái að njóta afraksturs þeirra gríðarlegu vinnu sem leikhópurinn og aðstandendur hafa lagt á sig. Leikritið verður sýnt á föstudags- og laugardagskvöldum næstu vikurnar.