Samtenging raforkukerfisins eftir truflunina á laugardag gekk vel og þakkar Landsnet það mikilli reynslu starfsfólks kerfisstjórnar fyrirtækisins og góðri samvinnu allra þeirra er tengjast flutningskerfinu. Mynd af vef Landsnets. Myndin tengist fréttinni ekki beint
Takmörkuð flutningsgeta byggðalínunnar og hætta á óstöðugleika í raforkukerfinu vegna hennar hefur orðið til þess að gerðar hafa verið áætlanir um styrkingu byggðalínunnar með byggingu nýrra lína með mun meiri flutningsgetu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Landsnet sendi rétt í þessu vegna straumleysis norðan- og austanlands sl. laugardag.
Fram kemur að mikil álagslækkun á Suðvesturlandi um hádegisbil laugardaginn 23. febrúar hafi valdið yfirlestun á byggðalínunni. Bilun í framleiðslueiningu á Norðausturlandi skömmu síðar olli svo því að rafmagnslaust varð á nánast öllu Norðausturlandi um tíma.
„Eins og fram hefur komið í fréttum er byggðalínan löngu komin að þolmörkum og rafmagnsflutningar um hana milli landshluta því takmörkunum háðir. Sú fyrirvaralausa breyting á álagi sem varð vegna truflunar hjá álverinu í Straumsvík á laugardag, og samsvarar 17% lækkun alls álags í raforkukerfinu, olli því að flutningur um byggðalínuna fór langt yfir getu hennar,“ segir í tilkynningunni.
Unnið er að því að greina betur hvort unnt hefði verið að takmarka áhrif truflunarinnar og afleitt straumleysi og ætlar Landsnet að fara yfir atburðarrás og úrbætur með sínum viðskiptavinum. Áhersla verður lögð á að sá búnaður sem tengist raforkukerfinu uppfylli allar gæðakröfur og að verklag tryggi að ýtrustu aðgátar sé gætt.
„Landsnet vinnur stöðugt að því að finna lausnir til að núverandi raforkukerfi standist sem best stór áföll en atburðarrásin reyndist kerfinu ofviða að þessu sinni“.