Sigríður Dögg Arnardóttir, kynfræðingur, heldur opinn fyrirlestur fyrir foreldra nemenda í VMA og MA í dag, fimmtudaginn 28. febrúar, kl. 20.
Sigríður hefur vakið mikla athygli fyrir að fjalla um kynlíf og samskipti kynjanna á opinn og hispurslausan hátt sem nær vel til ungmenna og hún gefur einnig foreldrum góðar leiðbeiningar um hvernig bæta má samskipti foreldra og ungmenna varðandi kynlíf.
Fyrr í vikunni hélt Sigríður fyrirlestra fyrir nemendur skólanna tveggja og fyrr í vetur hefur hún verið með fyrirlestra í grunnskólum Akureyrar, einnig á vegum foreldrafélaga skólanna. Hún skrifar reglulega pistla í helgarblað Fréttablaðsins um kynlíf.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Kvosinni, samkomusal MA í Hólum, og hefst kl. 20.










