Dragkeppni Norðurlands verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 2. mars. Keppnin er haldin af samtökunum Hinsegin Norðurland, en það eru fræðslu- og stuðningssamtök hinsegin fólks á Norðurlandi. Samtökin halda úti ýmsu félagsstarfi auk þess að fara með kynningar í skóla víða um land.
„Dragkeppnir, eða „dragshow“, eru vinsælar víða um heim en í slíkri keppni felst að einstaklingar bregða sér í líki hins kynsins, stíga á svið og leika listir sínar þar. Fólk má því búast við góðu „sjóvi“ þar sem drengir stíga á stokk sem glitrandi drottningar og stúlkur sem konungleg glæsimenni en þeir keppendur sem skara mest framúr með sín atriði verða krýnd dragdrottning og dragkóngur Norðurlands,“ segir María Ólafsdóttir, formaður Hinsegin Norðurlands.
Dragkeppni norðurlands er stærsti opni viðburður Hinsegin Norðurlands og mikið púður lagt í að gera hana sem glæsilegasta. Keppnin í ár lofar góðu enda fleiri keppendur en nokkru sinni fyrr. Keppnin er opin öllum sem vilja taka þátt og eru allir sem hafa áhuga á frábærri skemmtun sem gæti jafnvel kítlað hláturtaugarnar hvattir til þess að mæta og horfa á, en keppnin fer fram á efstu hæð í Rósenborg,
Skólastíg 2. Húsið opnar klukkan 19.00 og á keppnin að hefjast stundvíslega klukkan 19.30. „Það verður enginn svikinn á því að kíkja og svo er líka frítt inn!,“ segir María að lokum.
Sjá má upplýsingar um viðburðinn á Facebooksíðu Hinsegin Norðurlands








