Mikil hlýindi hafa verið síðustu daga og njóta Norðlendingar blíðunnar en hafa þó flestir í huga spekina er á meðan er.
Þótt flestir séu ánægðir með hlýindakaflann, enda margir haft áhyggjur af þykkum svellalögum, hefur blíðviðrið sína galla og má þar helst nefna svifrykið sem feykist nú um götur bæjarins enda hefur miklu magni af hálkuvarnarefni verið dreift í vetur.
Þrátt fyrir að ýmsum erfiðleikum sé bundið að hreinsa göturnar yfir vetrartímann nota bæjarstarfsmenn tækifærið þegar klakinn hefur látið undan síga og hreinsa stærstu og fjölförnustu göturnar.
Búið er að hreinsa götur í miðbænum en áætlað er að hreinsa stærstu og umferðarþyngstu göturnar s.s. Þórunnarstræti, Þingvallastræti og Glerárgötu segir Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur.