Fræðslufundur um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) og sjálfstætt líf

Fræðslufundur um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) og sjálfstætt líf

Freyja Haraldsdóttir verður meðal fyrirlesara á fundinum

Mánudaginn 4. mars verður haldinn fræðslufundur á vegum NPA miðstöðvarinnar og Velferðarráðuneytisins. Fræðslufundurinn er haldinn í tengslum við tilraunaverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð. Markmið fræðslunnar er að kynna inntak og þýðingu hugmyndafræði baráttuhreyfinga fatlaðs fólks um sjálfstætt líf og NPA.

Fræðslan miðast einnig að því að kynna reynslu fatlaðra frumkvöðla á Íslandi sem hafa reynslu af notendastýrðri persónulegri aðstoð og munu þeir varpa ljósi á þær leiðir sem þeir hafa farið við skipulag og uppbyggingu eigin aðstoðar, ásamt því að segja frá hvaða þýðingu það hefur að öðlast vald og um leið ábyrgð yfir eigin lífi, frelsi til að móta eigin lífstíl og taka þannig virkan þátt í samfélaginu.

Fyrirlesarar eru þau Aldís Sigurðardóttir, Embla Ágústsdóttir, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Björnsson og Vilborg Jóhannsdóttir.

Fræðslufundurinn fer fram í Hofi mánudaginn 4. mars milli kl. 16-20 og er ætlaður fötluðu fólki og aðstandendum þess, ásamt fagfólki og sveitarstjórnarfólki.

Dragkeppni Norðurlands fer fram á laugardagskvöldið

Dragkeppni Norðurlands verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 2. mars. Keppnin er haldin af samtökunum Hinsegin Norðurland, en það eru fræðslu- og stuðningssamtök hinsegin fólks á ... Lesa »

Zonta segir NEI við ofbeldi!

Í nóvember sl. hófst átak á vegum Zonta International undir yfirskriftinni Zonta segir nei! Með átakinu sem mun standa í tvö ár vill Zonta vekja athygli á verkefnum Zonta klúbba um allan ... Lesa »

Útilokar enn Sjálfstæðisflokkinn

Björn Valur Gíslason, nýkjörinn varaformaður VG, útilokar enn stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum þrátt fyrir að VG hafi í ályktun á landsfundi um helgina sagt að öllu skyldi ... Lesa »

Hús vikunnar: Skarð og Setberg við Hamragerði

Um daginn fjallaði ég um stórbýlið Lund sem stendur ofarlega á Suðurbrekkunni. En á Brekkunni, líkt og í Glerárþorpi voru þó nokkur býli fram yfir miðja 20.öld, þó miklu færri á ... Lesa »

Skrifin um Djáknann á Myrká

Þegar ég kynntist bændunum úr Hörgárdal höfðu þeir hug á að afklæðast í leikritinu Með Fullri Reisn og vildu ráða mig til að leikstýra. Sú hugmynd var skondin og skemmtileg en ég ... Lesa »

Þetta er bara svo ógeðslega gaman

Einar Stefánsson snjóbrettakappi frá Akureyri vann mót í Skövde í Svíþjóð um helgina en hann er við nám í íþróttamenntaskóla í Malung í Svíþjóð. Hann útskrifast þaðan sem ... Lesa »

Mikil fjölgun ferðamanna í Grímsey

Samkvæmt farþegatölum frá Grímseyjarferjunni Sæfara voru farþegar ferjunnar 3.088 árið 2007 en 6.535 árið 2012. Farþegafjöldinn hefur því rúmlega tvöfaldast á 5 árum og eru erlendir ... Lesa »

Ert þú foreldri ungmennis í VMA eða MA?

Sigríður Dögg Arnardóttir, kynfræðingur, heldur opinn fyrirlestur fyrir foreldra nemenda í VMA og MA í dag, fimmtudaginn 28. febrúar, kl. 20. Sigríður hefur vakið mikla athygli fyrir ... Lesa »

Nýsköpunarmiðstöð verðlaunar Róbert Guðfinnsson fyrir brautryðjendastarf á Siglufirði

Róbert Guðfinnsson, fjárfestir, hlaut í dag verðlaun frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands fyrir brautryðjendastarf á Siglufirði. Meðal verkefna sem Róbert hefur komið að á Siglufirði er ... Lesa »

Matís á Borgum lagt niður

Starfstöð Matís á Akureyri verður senn lögð niður. Að sögn Sveins Margeirssonar, forstjóra Matís eru ástæður ákvörðunarinnar af margþættum sérfræði- og hagræðingartoga en hann ... Lesa »

Breytingu beint gegn Kristjáni?

Getur ekki orðið ráðherra á sama tíma og hann gegnir störfum 2. varaformanns – tillaga sögð komin frá Eyjamönnum Kristján Þór Júlíusson, oddviti sjálfstæðismanna í ... Lesa »

Gagnrýnir geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni harðlega

Visir.is birti nú í kvöld pistil eftir Sigurð Steinþórsson 26 ára íbúa á Húsavík um baráttu hans við þunglyndi og harða gagnrýni á geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. ... Lesa »

Vændi á Akureyri til skoðunar

Lögreglan á Akureyri er með til skoðunar hvort skipulegt vændi fari fram í húsi í bænum. Ábendingar hafa borist um þetta bæði til lögreglu og einnig til ritstjórnar Akureyrar ... Lesa »

Fyrsti menningarviðburður Akureyrar og Denver

Á síðasta ári lýstu Akureyri og Denver vilja til að taka upp vinabæjarsamband á sviði menningar, menntunar og viðskipta. Nú hefur fyrsti menningarviðburðurinn verið skipulagður en ... Lesa »

Stærstu götur þrifnar í hlýindunum

Mikil hlýindi hafa verið síðustu daga og njóta Norðlendingar blíðunnar en hafa þó flestir í huga spekina er á meðan er. Þótt flestir séu ánægðir með hlýindakaflann, enda margir ... Lesa »

Akureyrarbær auglýsir eftir listamanni

Stjórn Akureyrarstofu auglýsir nú eftir umsóknum um starfslaun listamanna fyrir tímabilið 1. júní 2013 til 31. maí 2014. Einungis listamenn sem eiga lögheimili á Akureyri koma til ... Lesa »

Hvernig eru nemendur VMA?

Um 57% nemenda VMA eru karlar og 43% konur. Tæplega sex af hverjum tíu nemendum skólans koma frá Akureyri. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr tölulegum upplýsingum um nemendur skólans ... Lesa »

Mikil eftirspurn eftir menntuðum leiðsögumönnum

Mikil eftirspurn er eftir menntuðum leiðsögumönnum í kjölfar fjölgunar ferðamanna til landsins. Símenntun Háskólans á Akureyri ætlar að bregðast við því og býður nú leiðsögunám ... Lesa »

Keahótel opna nýtt hótel í Reykjavík

Fyrsta júní n.k opna Keahótel nýtt hótel í Reykjavík. Hótelið sem heitir Reykjavik Lights er að Suðurlandsbraut 12 og er þriðja hótelið sem Keahótel reka í Reykjavík og það ... Lesa »

Hraðlína fyrir þau sem vilja sleppa 10. bekk

Menntaskólinn á Akureyri býður upp á almenna braut - hraðlínu við skólann. Á þessari námsbraut gefst nemendum 9. bekkjar, sem hafa mikinn áhuga á bóklegu námi og gengur afbragðsvel ... Lesa »

Vertu á verði! – átakið hafið

Framsýn stéttarfélag, Þingiðn félag iðnaðarmanna og önnur stéttarfélög innan ASÍ hófu í gær átak gegn verðhækkunum undir yfirskriftinni – Vertu á verði. Þar eru almenningur ... Lesa »

Áætlanir um styrkingu byggðalínunnar

Takmörkuð flutningsgeta byggðalínunnar og hætta á óstöðugleika í raforkukerfinu vegna hennar hefur orðið til þess að gerðar hafa verið áætlanir um styrkingu byggðalínunnar með ... Lesa »

Fræðslufundur um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) og sjálfstætt líf

Mánudaginn 4. mars verður haldinn fræðslufundur á vegum NPA miðstöðvarinnar og Velferðarráðuneytisins. Fræðslufundurinn er haldinn í tengslum við tilraunaverkefni um notendastýrða ... Lesa »

Uppistand með Mið-Íslandi í kvöld

Í kvöld fer fram kvöldvaka Hugins, skólafélags MA, sem þó er öllum opinn. Þar munu félagarnir í Mið-Íslandi, Björn Bragi, Ari Eldjárn, Bergur Ebbi og Dóri DNA flytja ... Lesa »

Horft til framtíðar

Allt frá því að ég tók sæti í bæjarstjórn Akureyrar í upphafi þessa kjörtímabils hef ég ítrekað talað fyrir mikilvægi þess að bæjaryfirvöld gerðu áætlanir um rekstur ... Lesa »

Skoða meira