Starfstöð Matís á Akureyri verður senn lögð niður. Að sögn Sveins Margeirssonar, forstjóra Matís eru ástæður ákvörðunarinnar af margþættum sérfræði- og hagræðingartoga en hann nefnir mikinn niðurskurð ríkisins á kaupum á þjónustu, þrátt fyrir auknar kröfur t.a.m. á sviði varnarefnamælinga í kjölfar innleiðingar matvælalöggjafarinnar. Þar hafi Ísland lengi verið á undanþágu, þ.e. a.s. ekki séu öll varnarefni (skordýraeitur o.þ.h.) mæld sem ber þó að mæla skv. matvælalöggjöfinni. „Nú stendur fyrir dyrum uppbygging tækjabúnaðar til varnarefnamælinga sem Matís hefur fjármagnað með styrkumsóknum, en til að mögulegt sé að reka slíkan tækjabúnað er nauðsynlegt að öll sérfræðiþekking nýtist sem best. Því er sérfræðiþekkingu á svið efnagreininga safnað saman á einn stað, í Reykjavík.“
Spurður hvort há húsaleiga á Borgum hafi hér einnig áhrif, segir forstjóri Matís: „Húsaleiga að Borgum á Akureyri er sú langhæsta á fermetra sem Matís greiðir á öllum 10 starfstöðvum sínum á landinu. Ekki hefur verið mögulegt að lækka leiguna, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í þá veru. Því hefur Matís neyðst til að segja leigunni upp, en það var þó ekki mögulegt fyrr en frá og með árinu 2014. Þessar breytingar munu að sjálfsögðu verða starfsemi Matís á Akureyri áskorun, en eru nauðsynlegar, ekki síst í ljósi mun minni kaupa á þjónustu af hálfu ríkisins en verið hefur.“
Hann segir rétt að taka fram að aðrar breytingar muni verða á starfsemi Matís, samfara niðurskurði á kaupum ríkisins á þjónustu. Afleidd áhrif á nærsamfélagið á Akureyri verði í sjálfu sér ekki endanlega ljós, en í því sambandi sé rétt að benda á að varnarefnamælingar hafi ekki haft mikil samlegðaráhrif á aðra starfsemi á svæðinu. Flest sýni hafa verið flutt úr bænum og því hafi fylgt óhagræði.
„Í gangi hafa verið viðræður við Háskólann á Akureyri og fleiri aðila um möguleika til aukins samstarfs á öðrum sviðum, s.s. sjávarútvegsfræði og líftækni. Þar liggja ýmsir áhugaverðir fletir fyrir, en ekki er búið að taka neinar endanlegar ákvarðanir í þeim efnum. Það er meira en velkomið að upplýsa Akureyri Vikublað um þá þróun þegar við erum komin lengra á veg,“ segir Sveinn Margeirsson.










