Framsýn stéttarfélag, Þingiðn félag iðnaðarmanna og önnur stéttarfélög innan ASÍ hófu í gær átak gegn verðhækkunum undir yfirskriftinni – Vertu á verði. Þar eru almenningur og atvinnulífið hvött til að taka höndum saman og rjúfa vítahring verðbólgunnar. „Átakinu er ætlað að veita fyrirtækjum og stofnunum aðhald í verðlagsmálum og vekja neytendur til aukinnar vitundar,“ segir í frétt á vef stéttarfélagsins Framsýnar.
Á heimasíðu átaksins vertuaverdi.is geta allir sent inn ábendingar um verðhækkanir á fljótlegan og einfaldan hátt. Þannig er hugmyndin að skapa aðhald, meðvitund og umræðu um verðlagsmál.
Verðbólgan versti óvinur launafólks
„Launafólk er langþreytt á að hóflegar launahækkanir sem samið er um í kjarasamningum séu sífellt notaðar til að réttlæta miklar verðhækkanir og aukna verðbólgu. Við endurskoðun kjarasamninga nú í janúar lögðu fulltrúar launafólks mikla áherslu á að samstaða yrði meðal fyrirtækja og opinberra aðila um að sýna aðhald í verðhækkunum svo nýtilkomnar launahækkanir skili sér í auknum kaupmætti launafólks,“ segir á vef Framsýnar.