Björn Valur Gíslason, nýkjörinn varaformaður VG, útilokar enn stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum þrátt fyrir að VG hafi í ályktun á landsfundi um helgina sagt að öllu skyldi halda opnu.
„Landsfundurinn samþykkti að stefna áfram ótrauð á þátttöku í félagshyggjustjórn. Það eitt og sér útilokar Sjálfstæðisflokkinn, enda er sá flokkur ekki félagshyggjuflokkur. Miðað við hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hagaði sér um helgina og hvaða línur landsfundur flokksins lagði inn í framtíðina get ég ekki ímyndað mér að nokkur íslenskur stjórnmálaflokkur treysti sér til að lýsa yfir samstarfsvilja við þá teboðshreyfingu sem Sjálfstæðisflokkurinn umbreyttist í á landsfundinum,“ segir Björn Valur.
Hann segist stefna áfram að því að hafa stjórnmálin sem aðalstarf, a.m.k. í nánustu framtíð en þingmannsferli Björns Vals virðist lokið, a.m.k. í bili, eftir að hann náði ekki tilætluðum árangri.
„Varaformaður hefur ákveðnu hlutverki að sinna sem snýr inn á við í flokksstarfinu, sinna félögum víða um landið, huga að innra starfi, halda utan um flokksráðið sem er æðsta stofnum flokksins á milli landsfunda og fleira slíkt. Það verður því mitt hlutverk að sinna þessu ásamt öðrum verkefnum á vegum flokksins utan sem innan þings.“
Um brotthvarf Steingríms J. Sigfússonar og arftakann á formannsstóli, Katrínu Jakobsdóttur, segir Björn Valur: „Ég met styrk Katrínar Jakobsdóttur mikinn samanborið við formenn annarra stjórnmálaflokka. Hún nýtur trausts langt út fyrir raðir Vinstri grænna fyrir störf sín sem þingmaður og síðan ráðherra. Hún er fulltrúi hinna nýju stjórnmála eins og kom skýrt fram í ræðu hennar á landsfundinum og það eru miklar vonir bundnar við hana hvað það varðar af öllum sem kalla eftir breytingum á þeim vettvangi. Hún er líklegri en allir aðrir til að standa undir slíkum væntingum. Nýju fólki fylgja nýjar áherslur og nýtt vinnulag. Katrín mun setja sitt mark á stjórnmálin á næstu vikum, breyta kosningabaráttunni frá því sem við áður þekkjum og færa stjórnmálaumræðuna á annað plan en verið hefur. Hún hefur allt til að bera til að verða einn af öflugustu forystumönnum í íslenskum stjórnmálum og er reyndar þegar komin í þann hóp.“
Gengi eyfirskra VG-manna vakti athygli í stjórnarkjöri því auk varaformennskunnar sem féll í skaut Björns Vals eru fjórir af sjö í aðalstjórn Eyfirðingar. Hlynur Hallsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Bjarni Þóroddsson og Edward Hákon Huijbens.








