Stjórn Akureyrarstofu auglýsir nú eftir umsóknum um starfslaun listamanna fyrir tímabilið 1. júní 2013 til 31. maí 2014. Einungis listamenn sem eiga lögheimili á Akureyri koma til greina.
Starfslaunum verður úthlutað til eins listamanns og hlýtur viðkomandi átta mánaða starfslaun en það er breyting frá fyrra ári þegar úthlutað var til sex mánaða. Markmiðið með starfslaunum listamanna er að sá sem þau hlýtur geti helgað sig betur listsköpun sinni eða einstökum verkefnum á vettvangi hennar á tímabilinu.
Núverandi bæjarlistamaður er Guðbjörg Ringsted en hún heldur nú sýningu í Hofi. Á sýningunni eru ný og nýleg málverk þar sem Guðbjörg notar íslenskan útsaum sem innblástur. Guðbjörg rekur einnig Leikfangasafnið í Friðbjarnarhúsi.