Mikil eftirspurn er eftir menntuðum leiðsögumönnum í kjölfar fjölgunar ferðamanna til landsins. Símenntun Háskólans á Akureyri ætlar að bregðast við því og býður nú leiðsögunám í samstarfi við Leiðsöguskólann í MK, Samtök ferðþjónustunnar og SBA-Norðurleið, veturinn 2013-2014.
„Leiðsögunámið er víðfeðmt og fjölbreytt. Fjallað er um jarðfræði Íslands, sögu og menningu, gróður, dýralíf, atvinnuvegi og íslenskt samfélag, bókmenntir og listir. Nemendur eru fræddir um helstu ferðamannastaði á Íslandi, ferðamannaleiðir, náttúruvernd, umhverfismál og leiðsögutækni,“ segir Elín Hallgrímsdóttir símenntunarstjóri Háskólans á Akureyri.
Inntökuskilyrði er stúdentspróf eða sambærilegt nám og þurfa nemendur að standast munnlegt inntökupróf, sem haldið verður í byrjun júní, á því tungumáli sem þeir hyggjast leiðsegja á. Kennt verður þrjú kvöld í viku auk þess verða farnar vettvangs- og æfingaferðir.