Einar Stefánsson snjóbrettakappi frá Akureyri vann mót í Skövde í Svíþjóð um helgina en hann er við nám í íþróttamenntaskóla í Malung í Svíþjóð. Hann útskrifast þaðan sem stúdent í vor. Yngri bróðir hans, Viðar Stefánsson, tók einnig þátt í þessu móti en sá er í sama íþróttamenntaskóla og Einar. Einar hefur gert það gott undanfarið en hann keppti í Slóvakíu um þarsíðustu helgi og komst þá í undanúrslit.
„Þetta var þannig að það var svokölluð „Rail” keppni á torginu í Borginni Skövde i Svíþjóð síðasta laugardag, sem sænsk snjóbrettabúð stóð fyrir, Evolver. Ég varð í fyrsta sæti sem var mjög gaman,“ sagði Einar þegar blaðið náði sambandi við hann.
En þetta var ekki allt því um kvöldið fór fram boð og í bakgarðinum þar fór fram önnur „railkeppni“ sem Einar vann einnig. „Þarna var klikkuð tónlist og mikið af skemmtilegu fólki og ótrúlega gaman. Svo var skálað í kampavíni og fagnað fram á nótt!“
Einar er sem fyrr segir í snjóbretta menntaskóla í Malung, Svíþjóð en hefur verið atvinnumaður á snjóbretti síðan um jól. Svo ætla ég að klára skólan í vor og þá er ég kominn með stúdentinn.“
Hann segir pínu erfitt að stunda þetta sport út af öllum ferðalögunum og áreynslunni. „En þetta er bara svo ógeðslega gaman að það er bara ekki hægt að kvarta.“










