Skrifin um Djáknann á Myrká

Skrifin um Djáknann á Myrká

Jón Gunnar Þórðarson

Þegar ég kynntist bændunum úr Hörgárdal höfðu þeir hug á að afklæðast í leikritinu Með Fullri Reisn og vildu ráða mig til að leikstýra. Sú hugmynd var skondin og skemmtileg en ég vildi síðar setja upp Djáknann á Myrká. Það var samþykkt. Og nú er verkið að lifna við.

Maður þarf ekki að vera lengi í Hörgárdalnum til að finna fyrir skáldagyðjunni, náttúran kallar á sögur. Getur það verið rétt að það sé einhver sérstök andagift í Hörgárdalnum?

Hannes Hafsteinn frá Möðruvöllum, Kristján frá Djúpalæk, Ólöf frá Hlöðum, Vatnsenda Rósa frá Fornhaga, Jón Þorláksson frá Bægisá og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Ef þau hefðu öll verið uppi á sama tíma, hefðu þau verið í Leikfélagi Hörgdæla? Jónas Hallgrímsson hefði einnig verið gjaldgengur því hann var frá Öxnadal.

Þetta er lyginni líkast og því skylda mín að kynna mér verk þeirra áður en ég hófst handa á Djáknanum. Í verkinu Djákninn á Myrká fæ ég lánuð kvæði eftir þjóðskáld úr dalnum. Ég nýti brot úr Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson, erindi úr vísum Vatnsenda Rósu og kvæði eftir Kristján frá Djúpalæk. Þjóðskáldin gefa sögunni enn meiri dýpt en ekki er ólíklegt að skáldin hafi öll orðið fyrir áhrifum af Djáknanum á Myrká.

Þjóðsagan er ein sú þekktasta sem við Íslendingar eigum. Það sem heillar mig hvað mest er ástarsagan í verkinu og drunginn á bak við draugasöguna; galdrarnir og togstreitan milli góðs og ills. Einnig verður maður hugfanginn af efninu vegna þess að í því felast svo mörg sannleiksgildi. Í mörgum þjóðsögum og Íslendingasögum er verið að leika sér með og ýkja staðreyndir, þá ekki síst vegalengdir. Menn hlupu særðir þvert yfir landið til að hefna harma o.s.frv. En í þessari sögu ríður Djákninn frá Myrká að Bægisá og á leiðinni til baka fellur hann í Hörgá við Þúfnavallarnesið. Síðastliðið sumar reið leikfélagið þessa leið, reiðtúrinn tók ekki nema tvær klukkustundir, þó með góðum vískístoppum. Þessar staðreynir eru fyrstu vísbendingarnar um að hér hafi eitt sinn verið djákni sem varð ástfanginn af Guðrúnu á Bægisá en fallið í ánna og orðið af því örendur.

Til að komast að því hver Djákninn var þarf að spyrja spurningarinnar, hvenær gerðist sagan? Djáknar tilheyrðu kaþólskum sið og voru einungis í Hörgárdalnum fram að siðaskiptum. Þannig að sagan gerist fyrir 16.öld. Það voru þó ekki margir djáknar á ferð því kirkjurnar höfðu presta og djáknarnir voru helst sendir annað hvort í erindargjörð fyrir biskup eða til að aðstoða aldraða presta. En þeir dvöldust sjaldnast lengi á bæjunum, heldur fóru á milli. Séra Pétur Nikulásson, danskur munkur frá Vatíkaninu, var biskup á Íslandi 1391 – 1411. Árið 1394 sendi hann djákna Böðvar Ögmundsson í Hörgárdalinn að Bægisá til að víkja sera Guðbjarti Flóka Ásgrímssyni, prestinum á Bægisá, úr embætti því hann hafði gert eina stúlku úr sókninni þungaða. Djákninn kom með kaupmálann að Bægisá og flutti prestinn úr starfi en frilla prestsins, Þorbjörg að nafni, eignaðist búið. Þetta var fyrsti lögbundni kaupmálinn á Íslandi og líkast því sem síðar nefndust skilnaðir. Á þeim tíma voru vinnukonur á bænum, þær Ingibjörg og Guðrún. Þetta eru fyrstu kynni Guðrúnar og djáknans Böðvars Ögmundssonar. Djákni þessi stundaði nám í Hólaskóla og varð skólameistari á Hólum ungur að árum en dó skyndilega, hann hvarf, ekkert er vitað um dauðdaga Böðvars.

Þegar ég fór að grennslast til um vin okkar hann Böðvar langaði mig að kynnast skólabræðrum hans enn nánar, þeim Lofti Guttormsyni og Þorkeli Árnasyni.

Loftur ríki Guttormsson (f. um 1375, d. 1432) var íslenskur höfðingi, sýslumaður, hirðstjóri og riddari á 15. öld. Hann settist að á Möðruvöllum og er honum lýst sem kvensömum manni.

Séra Pétur Nikulásson biskup sendi Þorkell Árnason í betrun á Laufási í Skagafirði eftir að hann var ásakaður um að hafa stundað Svarta Galdur. Líklegt má teljast að Þorkell sé sá særingarmaður sem sent er eftir til að kveða niður drauginn í þjóðsögunni.

Hvað varðar leikmyndina höfðum við upp á klukkunni úr kirkjunni á Myrká sem var rifin árið 1911, vegna þess að það vantaði eldivið í sveitinni. Kirkjuklukkan í leikmyndinni er sennilega sú sama og Guðrún hringdi við sáluhliðið árið 1394.
Eftir að hafa greint frá klukkunni í sjónvarpsþættinum landanum var hringt og látið vita af því að dyrnar úr kirkjunni gemyndust að Þverá. Þær dyr hanga nú til sýnis í andyri leikhússins að Melum.

Ég tel að sagan um Djáknann á Myrká hafi gerst árið 1394, nánar tiltekið frá 13. des-27 des 1394. Ein undarleg staðreynd sem ég hef þó ekki í leikritinu er sú að 27. desember 1394 kom stormur, Hólakirkja fauk og hvert tré brotnaði og varð þar engu bjargað nema líkneskjum og helgum dómum. Þetta hefur verið þann sama dag og Þorkell var að kveða niður drauginn og Hörgdælingar kvörtuðu yfir drauganginum.

Árið 1402 geisaði plágan mikla, Svarti dauði, og mennskt líf í Hörgárdal nánast þurrkaðist út. Eftir pláguna tók kirkjan yfir flestar jarðir í dalnum en Loftur Guttormsson snéri heim eftir dvöl í Björgvin og erfði það sem kirkjan tók ekki. Loftur fékk viðurnefnið Loftur Ríki.

Allt eru þetta sannleiksgildi og hægt er að segja að Djákninn á Myrká sé byggður á sönnum atburðum. En skáldskapur er þetta engu að síður og því er farið nokkuð frjálslega með staðreyndir.
Sagan af Djáknanum á Myrká er orðin að veruleika, njótið!
Djákninn á Myrká lifir.

Takk fyrir Leikfélag Hörgdæla fyrir að treysta mér fyrir þessu epíska verkefni.
Jón Gunnar Th.
leikstjóri og höfundur

Harvey Siegel

Hvað er gagnrýnin hugsun? Af hverju er hún mikilvæg?

Hvað er gagnrýnin hugsun? Af hverju er hún mikilvæg? Þetta eru spurningar sem Harvey Siegel prófessor við Háskólann í Miami veltir upp í fyrirlestri sem haldinn verður við Háskólann á ... Lesa »

Mynd sem Linda Ólafsdóttir tók fyrr í veturMynd: Linda Ólafsdóttir

Veður og ófærð

Þá er vetrarveðrið skollið á aftur eftir mikinn hlýindakafla. Veðurstofan varar við norðan og norðaustan hvassviðri eða stormi (15-25 m/s) víða um land a.m.k. fram á kvöld. Á ... Lesa »

Kristín Einarsdóttir

Má bjóða þér far?

„Má bjóða þér far?” Spurði mig kona. Ég á ekki bíl og þarf því að reiða mig á tvo jafnfljóta, strætó eða “Svörtu þrumuna” sem er hjólið mitt . Ég bý á Akureyri og ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Að kúra með tígrisdýri

Um daginn sat ég með kaffibolla og renndi hugsunarlaust yfir Fésbókina. Augun staðnæmdust við mynd af gamalli konu og í flæðinu sem skapast milli svefns og nægrar koffeininntöku renndi ég ... Lesa »

Candle

12 ára drengur lést í bílslysinu í Skagafirði

Drengurinn sem lést í bílveltu við bæinn Egilsá í Norðurárdal í Skagafirði í fyrradag hét Blængur Mikael Bogason og var nýorðinn tólf ára. Hann var farþegi í jeppa sem lenti út af ... Lesa »

Steingrímur J. Sigfússon

Tímamót og tækifæri

Á dögunum urðu nokkur tímamót í mínu pólitíska lífi þegar ég eftir 14 ára samfellda formennsku í Vinstrihreyfingunni grænu framboði lét af því embætti og Katrín Jakobsdóttir tók ... Lesa »

Vífill Karlsson lektor flutti erindi sitt á Akureyri.

Stærðarhagkvæmni er ekki sjálfgefin

Ef tvö stór sveitarfélög sameinast getur skapast togstreita um þjónustu og jafnvel þensla sem verður til þess að éta hagræðingu á öðrum sviðum upp. Þetta kom fram í umræðum um ... Lesa »

Hermann Óskarsson

Fann manntalið á öskuhaugunum

Út er komin bókin Félagsgerð Akureyrar 1785-2000: Upphaf og þróun þéttbýlis, stéttaskiptingar, stjórnmála og atvinnulíf eftir Hermann Óskarsson dósent við Háskólann á Akureyri. ... Lesa »

Möðruvallaprestakalli aftur skipt upp

Á kirkjuþingi, sem slitið var í dag, var samþykkt að Möðruvallaprestakalli verði aftur skipt upp í tvö prestaköll. Það varð til við sameiningu Möðruvalla- og Hríseyjarprestakalls í ... Lesa »

bjorgun

Björgunarsveitir á leið í Svarfaðadal

Björgunarsveitir á Norðurlandi eru nú á leið í Svarfaðardal að sækja göngukonu sem slasaðist í fjalllendi. Konan, sem var á ferð með gönguhópi, er líklegast fótbrotin. Slysið ... Lesa »

Heimspólitíkin krufin á Akureyri

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í gær verkið Kaktusinn eftir Juli Zeh í leikstjórn Ragnheiðar Skúladóttur, leikhússtjóra LA. Margir hafa beðið í ofvæni eftir sýningunni enda þótti ... Lesa »

Samhengi hlutanna

Um sýningu Finns Arnars og Þórarinns Blöndal Sýningin Samhengi hlutanna stendur nú yfir í Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri, en að henni standa myndlistamennirnir Finnur Arnar Arnarson ... Lesa »

Björn Þorláksson

Skólakerfi á krossgötum

Félag grunnskólakennara hyggst nú í samráði við Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Skólastjórafélag Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga endurskoða þá skólastefnu sem ... Lesa »

Nú reynir á okkur

Nú veit ég ekki hvernig ég á að snúa mér. Fyrir rétt tæpu ári síðan var lagt fram deiliskipulag sem fól það í sér að afkastamiklar breytingar yrðu gerðar við Drottningarbraut ... Lesa »

Norðlenska greiðir 525 bændum arð

  Rekstur Norðlenska gekk vel í fyrra og 2012 er næst besta rekstrarár félagsins frá upphafi. Ársvelta var tæpir 4,7 milljarðar króna og jókst um rúm 3,1% á milli ára. ... Lesa »

Ellefu ára drengur safnar skeggi

Hann kom svo glaður til mín í morgun, nýorðinn ellefu ára, burstaklipptur með glampa í augum sem skarta snemmbúnum broshrukkum í kring , sagði „mamma það er fyrsti mars í dag nú fer ... Lesa »

Kolbeinn Höður í 20. sæti á EM

Akureyringurinn Kolbeinn Höður Gunnarsson hljóp í gær í riðlakeppni 400 m hlaupsins á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem fram fer þessa dagana í Gautaborg. ... Lesa »

Banaslys í Skagafirði

Einn lést þegar bíll ók út af veginum við Norðurárdal í Skagafirði á þriðja tímanum í dag. Þrír til viðbótar voru í bílnum en ekki er vitað um meiðsl þeirra, einn af þeim er ... Lesa »

Strandsiglingar hefjast síðar á þessu ári

Ríkisstjórnin samþykkti fyrir sitt leyti í morgun tillögu innanríkisráherra um að hefja útboð fyrir strandsiglingar og var innanríkisráðherra og fjármálaráherra falin framkvæmd ... Lesa »

Ný stólalyfta á teikniborðinu fyrir Hlíðarfjall

Síðustu helgar hafa verið með þeim allra bestu í manna minnum á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Vetrarfrí hafa verið í grunnskólum á suðvesturhorni landsins og fólkið streymt ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá þeir sem búa svo um hnútana að láta keðju en ekki girðingu duga til að verja gilbrúnina meðfram safnaðarheimilinu á Akureyri, segir karl sem hringdi í blaðið. „Það segir ... Lesa »

Móttökustöð fyrir mannsandann og Víxlverkun í Sjónlistamiðstöðinni

Tvær sýningar opna á morgun, laugardaginn 2. mars kl. 15 hjá Sjónlistamiðstöðinni. Annars vegar opnar í Ketilhúsi sýningin Móttökustöð fyrir mannsandann en það er sýning á verkum ... Lesa »

Aðstoðarslökkviliðsstjóri ráðinn

Björn Heiðar Sigurbjörnsson hefur verið ráðinn aðstoðarslökkviliðsstjóri hjá slökkviliði Akureyrar. Björn Heiðar hefur viðamikla reynslu og þekkingu af stjórnun slökkviliða. Hann ... Lesa »

Dragkeppni Norðurlands fer fram á laugardagskvöldið

Dragkeppni Norðurlands verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 2. mars. Keppnin er haldin af samtökunum Hinsegin Norðurland, en það eru fræðslu- og stuðningssamtök hinsegin fólks á ... Lesa »

Zonta segir NEI við ofbeldi!

Í nóvember sl. hófst átak á vegum Zonta International undir yfirskriftinni Zonta segir nei! Með átakinu sem mun standa í tvö ár vill Zonta vekja athygli á verkefnum Zonta klúbba um allan ... Lesa »

Skoða meira