Fyrsta júní n.k opna Keahótel nýtt hótel í Reykjavík. Hótelið sem heitir Reykjavik Lights er að Suðurlandsbraut 12 og er þriðja hótelið sem Keahótel reka í Reykjavík og það sjötta í heildinni. Hin hótelin í Reykjavík eru Hótel Borg og Hótel Björk.
Á Reykjavík Lights verða 105 vel útbúin herbergi, bar, fundarsalur og veitingastaður og yfirbyggð bílageymsla. Hótelið er afar vel staðsett við útivistar og íþróttasvæðin í Laugardalnum og eins gagnvart miðbænum.
„Við vildum ekki bara opna hótel heldur vildum við koma með eitthvað alveg nýtt inn á markaðinn. Því efndum við til samkeppni um „concept“ og útfærslu á því fyrir hótelið. Tillögurnar sem bárust voru mjög spennandi og fyrir valinu varð Reykjavik Lights. Það er mjög gaman að sjá hugmyndafræðina lifna svona við í litum og ljósum í framkvæmdunum,“ segir Páll L. Sigurjónsson, framkvæmdarstjóri og einn eigenda Keahótela.
Tark arkitektar eru aðalhönnuðir hótelsins en Concept hönnunin kemur frá HAF. “Okkar hugmynd er að fara nýja leið og byggja heildarupplifun á þessu nýja hóteli út frá einstöku fyrirbæri sem flestir Íslendingar þekkja, hina síbreytilegu birtu landsins. Við teljum að birtan og íslensku árstíðirnar séu spennandi uppspretta fróðleiks og upplýsinga sem hægt er að miðla áfram á skemtilegan hátt. Hún er að okkar mati góður grunnur til að byggja hugmyndafræði hótelsins á og gefur marga útfærslumöguleika. Til þess að auka tengingu við menningararfinn höfum við endurvakið gamla íslenska tímatalið og bætt inná það viðburðum sem einkenna árstíðirnar. Við teljum að rétta efnisvalið sem henti hugmyndafræðinni sé klassíkt, norrænt, náttúrlegt og glæsilegt.” segir Hafsteinn Júlíusson hjá HAF.