Sigurður E. Sigurðsson, læknir á FSA sem hefur verið viðriðinn sjúkraflugið frá því það komst í núverandi form, segist bera fullt traust til Mýflugs.
„Ég hef ekki orðið vitni að neinni áhættuhegðun hjá Mýflugi í þessi ár sem ég hef starfað með þeim og ber til þeirra fyllsta traust. Ég veit ekki betur en aðrir læknar og sjúkraflutningamenn sem starfa með þeim geri það líka,“ segir Sigurður.
Sem dæmi um traust nefnir Sigurður að allir samstarfsmenn Mýflugs hafi ákveðið að halda áfram eftir slysið. „Að mínu viti taka þeir öryggismálin alvarlega og þótt ég sé ekki lærður í flugfræðum frekar en margir aðrir sem hafa tjáð sig um þetta mál þá finnst mér nú líklegt að maður hefði orðið var við ef pottur væri brotinn í þessum efnum.“
Björn Gunnarsson fluglæknir sem áður fór í margar ferðir með Mýflugi hefur stigið fram og sagt frá sinni reynslu í flugi, þar sem hann segist hafa orðið hræddur um líf sitt þegar flugmenn félagsins léku sér í lágflugi og voru með sýndarmennsku. Um orð Björns segir Sigurður: „Ég get ekki tjáð um um þessi dæmi sem Björn nefnir þar sem ég þekki ekki nægilega til þeirra. Mér sýnist þó að um þau tilvik hafi verið fjallað og úrbætur gerðar þar sem þörf var á.“
Breyting yrði ógæfuspor
Sigurður segist ekki skilja hvaða tilgang fréttaröð 365 um málið hafi. „Þeirri spurningu verða þeir sjálfir að svara. Mér fannst dapurlegt að menn gátu ekki beðið með þessa umfjöllun þar til lokaskýrsla rannsóknarnefndarinnar lá fyrir. Það var ótrúlegur samhugur í fólki eftir slysið að nálgast málið með virðingu fyrir þeim sem áttu um sárt að binda.“
Einn angi umræðunnar hefur spunnist um hvort flugslysið og rannsóknin á því kunni að hafa áhrif á hvort sjúkraflugið verður sett undir Landhelgisgæsluna. „Ég hef heyrt af þeirri hugmynd að sjúkraflugið fari til Landhelgisgæslunnar en þá með þeim formerkjum að miðstöð þess verði áfram hér á Akureyri. Að öðru leyti veit ég ekki annað en að þetta hafi eingöngu verið hugmynd og er ekki kunnugt neinar áætlanir sem liggja fyrir varðandi þetta,“ segir Sigurður.
„Sjúkraflug með miðstöð sína á Akureyri hefur fyrir löngu sannað gildi sitt. Þetta veitir öryggi og styrk í heilbrigðisþjónustuna utan höfuðborgarsvæðisins. Það yrði að mínu viti ógæfuspor og afturför ef flugið yrði flutt suður.“
-BÞ








