Hin árlega Sleðahundakeppni Icehusky fer fram í Kjarnaskógi, Naustaborgum og Hömrum, laugardaginn 18. janúar.
Alls eru 15 lið skráð til keppni auk 6 liða í barna- og unglingakeppni. Icehusky er félag á Norðurlandi sem sérhæfir sig í Dráttarhunda sporti hvort sem það er á Sleðum, reiðhjólum eða heimatilbúnum tækjum.
Sleðahundakeppni hefur verið að ryðja sér til rúms á síðustu árum og eru nú þó nokkrir sem keppa mikið í þessu sporti hérna á Íslandi.
Dagskrá:
Barnakeppnin hefst klukkan 10:00
800 m barnakeppni með einn hund
800 m unglingakeppni með einn hund
Opnir flokkar hefjast klukkan 12:00
20 km sleðahlaup með 4-5 hunda
10 km sleðahlaup með 2-3 hunda
5 km sleðahlaup með 2 hunda
Ræst er frá Hömrum






















