Á laugardagskvöld er síðasta sýningin á hinu magnaða leikverki Sek eftir Hrafnhildi Hagalín. Í tilefni af 16 daga átaki gegn ofbeldi taka LA og AFLIÐ - samtök gegn kynferðis - og heimilisofbeldi á Norðurlandi höndum saman. 500 krónur af hverjum aðgöngumiða munu renna til samtakanna og að sýningu lokinni verður pallborð þar sem rædd verður staða málaflokksins í dag.
Í pallborði sitja Anna María Hjálmarsdóttir, formaður Aflsins, Margrét Helga Erlingsdóttir, frá listahópnum Barningi, Sigrún Sigurðardóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, Ingibjörg Huld Haraldsdóttir, leikstjóri verksins Sek og Logi Már Einarsson, bæjarfulltrúi og arkitekt.
Verkið Sek hefur fengið góða dóma gagnrýnenda en um er að ræða frumflutning á nýju leikriti eftir Hrafnhildi Hagalín. Verkið fjallar um dómsmál vegna sifjaspells sem átti sér stað á Melrakkasléttu snemma á 19. öld og hafa áhorfendur margir velt fyrir sér breytingum og þróun í málum tengdum kynferðisbrotum síðustu 200 árin.




