Annað kvöld verður frumsýndur gamanleikurinn Gúgglaðu það bara í Sjallanum á Akureyri. Þar er sagt frá tveimur karlmönnum um þrítugt sem leita stöðugt að rétta svarinu við lífsgátunni, meðal annars á leitarvélum á netinu. Oft mæta þeir mótlæti en stundum er lífið bara meðlæti.
Með aðalhlutverk fara Brynjar Gauti Schiöth og Hallur Örn Guðjónsson en auk þeirra fara þrjú ungmenni með hlutverk. Það eru þau Valdís Eiríksdóttir, Torfi Þór Tryggvason og Sigurlaug Indriðadóttir en saman skipa þau söngtríó sem flytur þekkt lög með nýjum söngtextum auk þess að fara með hlutverk.
Höfundar eru Pétur Guð og Jokka, leikstjóri er Ívar Helga og tónlistarstjóri er Heimir Ingimars.
Gúgglaðu það bara verður bæði kaffileikhús og sýnt með jólahlaðborðum Sjallans og Greifans.
En það er fleira að gerast á morgun. Þá fer fram (eins og landsmönnum flestum mun kunnugt) móðurviðureign allra viðureigna í knattspyrnu þegar Íslendingar eygja séns á lokakeppni HM með sigri á Króötum. „Því höfum við brugðið á það ráð að hefja frumsýningu kl. 22:00, tveimur tímum síðar en að var stefnt. Fyrir þá sem vilja mæta snemma þá sýnum við leikinn á tjaldi,“ segir Pétur Guðjónsson.




