Laugardaginn 16. nóvember kl. 14, á Degi íslenskar tungu, opnar myndlistarmaðurinn Jón Laxdal Halldórsson sýningu með nýjum verkum í Flóru á Akureyri.
Jón hefur lengi verið virkur í menningarlífinu á Akureyri. Hann átti hlut í rekstri Rauða hússins og var í hópi þeirra sem hófu Listagilið á Akureyri til vegs og virðingar. Jón kom eftir krókaleiðum inn í myndlistina. Hann nam heimspeki við HÍ og hefur látið að sér kveða í skáldskap með útgáfu nokkura ljóðabóka.
Jón hefur haldið á þriðja tug einkasýninga ásamt þátttöku í fjölda sýninga bæði heima og erlendis. Verk eftir hann eru í eigu safna og safnara víða um heim.
Upplýsingar um Jón Laxdal og verk hans má finna á heimasíðunni http://www.freyjulundur.is
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru mánudaga kl. 12-18 og þriðjudaga til laugardaga kl. 12-16. Sýningin stendur til laugardagsins 18. janúar 2014.




