Eik Haraldsdóttir var valin Jólastjarna Björgvins árið 2013. Valið var tilkynnt í þættinum Ísland í dag fyrr kvöld og sagt var frá því í frétt á visir.is að Eik hafi verið valin úr hópi mörg hundruð umsækjenda sem sendu inn lag á Vísi í október.
Dómnefnd valdi tíu bestu söngvarana til að mæta í prufur sem voru sýndar í Íslandi í dag síðastliðið föstudagskvöld. Þar var Eik meðal keppenda. Hún söng Majonesjól með Bogomil Font og Ben með Michael Jackson og heillaði dómnefndina upp úr skónum. Hér á vef Vísis má sjá flutning Eikar
Eik kemur fram með Jólagestum Björgvins í Laugardalshöllinni þann 14. desember. Hinir níu söngvararnir sem komust í úrslitahópinn munu einnig koma fram á tónleikunum.
Í dómnefnd Jólastjörnunnar voru Björgvin Halldórsson söngvari, Hulda Björk Garðarsdóttir söngkona, Gunnar Helgason leikstjóri og Eyþór Ingi Gunnlaugsson söngvari. Undirleikari söngvara var Pálmi Sigurhjartarson.




