Hr. bæjarstjóri Eiríkur Björn Björgvinsson
Tilefnið er greinarskrif Tryggva Sveinbjörnssonar í Akureyri Vikublað, 7. nóv. sl. þar sem hann ásakar m.a. bæjarfulltrúa Sigurð Guðmundsson um spillingu.
Ljóst er að kjörnir fulltrúar verða að njóta virðingar í samfélaginu og störf þeirra fyrir bæinn skulu hafin yfir vafa, en ekki gagnrýni. Ásökunum um spillingu bæjarfulltrúa má því ekki taka með neinni léttúð.
Tryggvi sakar bæjarfulltrúa Sigurð m.a. um að nýta sér stöðu sína gagnvart embættismönnum bæjarins til að framfylgja eigin hagsmunum og nefnir eitt dæmi máli sínu til stuðnings, þar sem bæjarfulltrúi Sigurður ræsir út embættismann á laugardegi.
Sem fyrverandi embættismaður hjá Akureyrarbæ þótti mér þetta atriði sérstaklega forvitnilegt og hafði því samband við bæjarfulltrúa Sigurð í gegnum samskiptavefinn ,,facebook“ og innti hann um viðbrögð við þessum skrifum og skiptumst við í leiðinni á skoðunum sem ekki leiddu til neinnar niðurstöðu.
Það vakti hins vegar athygli mína í svörum bæjarfulltrúans, í þessum skoðanaskiptum, að hann bar ekki til baka ofangreinda fullyrðingu Tryggva heldur bætti um betur og taldi sig í fullum rétti að hringja í æðstu embættismenn bæjarins, alla daga vikunar og lesa mátti á milli línanna hvenær sem er sólarhringsins, ef því væri að skipta. Þetta væri einnig sjálfsagður réttur allra bæjarbúa. Hann hafi því ekki gert neitt það sem allir aðrir hefðu ekki geta gert í hans sporum. Þessa skoðun lætur hann einnig í ljósi í viðtali í DV 8. nóv. sl. Svo vitnað sé beint í bæjarfulltrúa Sigurð: ,,Það hefði hver sem er getað gert þetta.“
Loks vakti athygli mína status, sama bæjarfulltrúa á samskiptavefnum ,,facebook“ þann 7. nóvember kl. 8:30, að sama tilefni. Þar segir bæjarfulltrúi Sigurður m.a.: ,,Með fyrstu fréttum sem maður les við heimkomuna er afburða illa skrifuð grein eftir Tryggva Sveinbjörnsson bílstjóra og vitleysing þar sem hann veitist að mér og Oddi Helga Halldórssyni.“ Síðan segir bæjarfulltrúi Sigurður: ,,Allur skíturinn og heimskan sem fólk nennir að láta frá sér í rituðu máli og fær birt án athugasemda er frábært“. Og bæjarfulltrúinn heldur áfram: „Hvet umræddan Tryggva til að skrifa bók sem heita ætti „Olnbogabarnið” eða „Svartir peningar nýtast betur”.“
Ég hef því ákveðið að bera upp opinberlega tvær spurningar til þín, sem æðsta yfirmanns embættismanna Akureyarbæjar og framkv.stjóra bæjarins, þ.s. ég tel að svörin eigi fullt erindi við alla bæjarbúa.
Spurning 1:
Er þetta réttur skilningur bæjarfulltrúans á starfsskyldum embættismanna bæjarins?
Ef svo er, þarf þá ekki einnig að birta, á heimasíðu Akureyrarbæjar, heimasíma embættismanna þannig að hægt sé að hringja í viðkomandi utan venjulegs vinnutíma til að bera megi upp erindi hvenær sem þurfa þykir?
Sé skilningur bæjarfulltrúans hins vegar rangur hefur þá bæjarfulltrúi Sigurður gerst sekur um að brjóta gegn siðareglum kjörinna fulltrúa bæjarins, með því að nýta sér stöðu sína gagnvart embættismönnum eins og Tryggvi heldur fram ?
Spurning nr. 2
Samræmast þessi skrif bæjarfulltrúa Sigurðar Guðmundssonar, á ,,facebook“ þann 7. nóvember kl. 8:30, 3 gr. siðareglna kjörinna fulltrúa í Akureyrarkaupstað en þar segir ,,Í störfum sínum skulu kjörnir fulltrúar koma fram af drengskap og háttvísi og sýna hver öðrum, íbúum, viðskiptavinum og starfsmönnum sveitarfélagsins fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu. Kjörnir fulltrúar skulu gæta þess að framkoma þeirra og athafnir samrýmist starfi þeirra og þeir forðist að aðhafast nokkuð sem gæti orðið þeim til vanvirðu og álitshnekkis.“
Ég tel afar brýnt að bæjarbúar fái svör við þessum spurningum. Einnig er mikilvægt fyrir embættismenn bæjarins og aðra starfsmenn að fá að vita í hvaða starfsumhverfi þeir starfa þegar þeir ráða sig hjá Akureyrarbæ.
Friðleifur Ingi Brynjarsson






























