Í dag kl. 14.00 opnar Ragnar Hólm sýningu á nýjum vatnslitamyndum í Populus tremula. Heiti sýningarinnar, Dagur með Drottni, vísar til himneskrar fegurðar íslenskrar náttúru. Þetta er sjötta einkasýning Ragnars. Sýningin er einnig opin sunnudaginn 17. nóvember kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
„Þetta eru nær eingöngu landslagsmyndir og ég leita mest fanga hér í Eyjafirði en teygi einnig anga mína yfir í Skagafjörð. Mér er sagt að það hafi orðið nokkur breyting í litaskalanum hjá mér og svo er ég farinn að mála mun stærri myndir sem gaman verður að sýna,“ segir Ragnar Hólm.




