Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar sem L-listinn lagði fram til kynningar í síðustu viku fær falleinkunn hjá bæjarfulltrúum minnihlutans. Stór orð falla um að rekstur bæjarsjóðs bæði fram og aftur í tímann sé vondur.
Eins og hálfs milljarðs yfirdráttur
„Þessi fjárhags áætlun er eins og þær síðustu; kropp hér og þar án þess að hægt sé að koma auga á einhverja framtíðarsýn fyrir bæinn okkar,“ segir Logi Már Einarsson, bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri.
„Stuttar óvissuferðir geta verið hressandi til að hrista mannskapinn saman en þegar haldið er í fjögurra ára ferðalag á kostnað aðalsjóðs er eins gott að vita til hvers það er farið, hvert ferðinni er heitið og hversu miklum gjaldeyri er hægt að öngla saman til fararinnar.
Logi Már segist satt að segja ekki átta sig á þessari ferð L-listans nú þegar dregur nær heimkomu. „Þau fáu fyrirheit sem gefin voru í upphafi hafa að engu orðið ef frá er skilin Dalsbrautin, sem þó var framkvæmd með talsvert öðrum hætti en hugmyndafræðilegur leiðtogi flokksins, Oddur Helgi Halldórsson, lofaði.“
„Það getur að sjálfsögðu verið sniðugt að njörva sig ekki um of niður í fyrirfram hugsuð ferðaplön; láta hrífast af stað og stund, breyta kúrsi. L-listinn hefur hins vegar verið nær ófáanlegur til að ræða þau. Það heyrir til dæmis til undantekninga ef fulltrúar flokksins sjá ástæðu til þess að taka þátt í umræðum hvort heldur er í bæjarráði eða bæjarstjórn. Þeir hljóta þó að skulda bæjarbúum það að upplýsa um framgang ferðarinnar. Ef farareyrir væri nægur og á hann gengi samkvæmt áformum mætti þetta kannski einu gilda. En nú þegar líður að lokum ferðarinnar er myndin að verða nokkuð ljós; engir nýir og spennandi áfangastaðir hafa verið skoðaðir, aurinn fyrir löngu búinn og raunar búið að ferðast síðustu tvö árin á eins og hálfs milljarða yfirdrætti, án þess að sjái fyrir endann á því.“
Logi Már segir að í fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir 2014 sé „…af nokkurri örvæntingu gripið til handahófskennds niðurskurðar sem mun að mínu mati enn auka á ójafnrétti bæjarbúa, ekki síst barna og unglinga til leiks og starfs“.
Nýrrar bæjarstjórnar bíði það verkefni að koma rekstri aðalsjóðs í jafnvægi, þó með þeim hætti að ítarlega verði farið yfir heildarreksturinn með það fyrir augum að jafna aðstöðu íbúanna.
„Til lengri tíma þarf að þróa uppbyggingaráform sem miða að því að gera rekstur bæjarins sjálfbæran. Við þurfum einfaldlega að byggja minna og þéttar. Ég held að þrátt fyrir allt vilji langflestir að útsvar bæjarins renni í auknum mæli í starfsemi, á kostnað malbiks, steypu, klóaklagna, snjómoksturs og hirðingu arfa,“ segir oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri.
Stefnuskráin marklaust plagg?
Guðmundur Baldvin Guðmundsson, oddviti framsóknarmanna í bæjarstjórn Akureyrar, segir um fjárhagsáætlun bæjarins 2014 að hann hafi áhyggjur af þróun fólksfjölgunar í bænum og bendir á að útsvarstekjur yfirstandandi árs séu undir áætlun. „Það er áhyggjuefni að ekki skuli tekið til í rekstrinum sérstaklega í ljósi þess að bæjarsjóður hefur verið rekinn með miklum halla s.l. ár. Ég hef lengi bent á að það þurfi að forgangsraða í rekstrinum. Geir Kristinn Aðalsteinsson [forseti bæjarstjórnar] hefur nú tekið undir þetta og sagði einmitt á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku að bregðast yrði við hið snarasta. Við hefðum talið að það hefði þurft að bregðast við miklu fyrr.“
Rekstrarvandinn sem bærinn stendur frammi fyrir má m.a. rekja til mikillar uppbyggingar á liðnum árum. Mikið hafi verið byggt og sem dæmi megi nefna að árlegur kostnaður vegna mannvirkja íþrótta- og æskulýðsmála sé hátt í 900 milljónir króna. Guðmundur Baldvin nefnir sem dæmi að gervigrasvöllur KA, sem byggður var sem afleidd framkvæmd Dalsbrautar, kosti bæinn árlega ríflega 30 milljónir króna. „Við erum að mínu mati með íþróttamannvirki sem dygðu fyrir 40.000 manna samfélag og ljóst að við höfum ekki efni á frekari nýframkvæmdum í íþróttamannvirkjum á næstu árum.“
Um störf L-listans á kjörtímabilinu segir Guðmundur Baldvin að það vanti heildarstefnu og framtíðarsýn. Hann hefði viljað sjá meiri kraft í 10 ára áætlun sem lagt var af stað með en L-listinn hafi ekki haft þrek til að koma verkinu áfram. Þá beri meirihlutinn fyrir sig að erfitt sé að takast á við rekstrarvanda vegna mikillar uppbyggingar á liðnum árum, eins og það hafi ekki legið fyrir í upphafi kjörtímabils. Oddur Helgi hljóti að hafa gert sér grein fyrir stöðunni eftir áralanga setu í bæjarstjórn. Þá bendir Guðmundur Baldvin á að L-listinn hafi hreinan meirihluta og hafi haft öll tök á að koma sínum stefnumálum fram. Nefnir hann sem dæmi hagræðingu í stjórnkerfi bæjarins og að ekki yrði ráðið í stöður án auglýsinga. „Gekk það eftir eða er stefnuskrá L-listans marklaust plagg?“
Traustið að engu orðið
„Fjárhagsáætlunin þetta árið hefur verið unnin með svipuðu sniði og áður og er það miður. Lítið hefur verið brugðist við hallarekstri á árinu og fjárhagurinn látinn reka á reiðanum eitt árið enn,“ segir Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi Bæjarlistans á Akureyri um fjárhagsáætlun L-listans.
„Það er með öllu ólíðandi að þrátt fyrir varnaðarorð mín snemma árs um að tekjuáætlun myndi ekki standast að ekki hafi verið brugðist við. Það er ekki með nokkrum hætti hægt að benda á veikleika eða styrkleika í þessari áætlun að mínu mati. Það eru engar nýjungar eða stórar breytingar sem einhverju máli skipta. Vissulega er gert ráð fyrir betri rekstri á næsta ári en traust mitt á þessum meirihluta er að engu orðið eftir aðgerðarleysi þessa árs.“
Verði að skera niður umhverfisátak
Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, segist þeirrar skoðunar að endurskoða beri afmælisgjöf Akureyrarbæjar sem gerði ráð fyrir útgjöldum í formi umhverfisátaks. Ástæðan sé taprekstur Akureyrarbæjar. Í bókun sem Njáll Trausti lét gera í framkvæmdaráði 1.nóvember
sl. óskar hann eftir því við bæjarstjórn Akureyrar að þær fjárhæðir sem reiknað var með að leggja í umhverfisátakið á næstu árum verði endurskoðaðar til lækkunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014 og í langtíma fjárhagsáætlunargerð bæjarins með tilliti til erfiðrar fjárhagsstöðu bæjarins. Huga beri frekar að nauðsynlegri grunnþjónustu í bænum.
Njáll Trausti segir öll merki uppi um að fjárhagsáætlun L-listans bregðist enn eina ferðina, nú vegna ofmats í tekjuáætluninni. „Reyndar samþykktum við sjálfstæðismenn ekki fjárhagsáætlunina fyrir 2013 ekki og þá helst vegna þess að við töldum tekjuáætlunina ekki trúverðuga.“ Rætt sé um nýjar hótelbyggingar sem sé sama umræða og fyrra. „Við skulum vona að framkvæmdir í bænum fari að aukast. Ég hef síðan efasemdir um að Dysnes verði áhrifavaldur í rekstri bæjarsjóðs á næsta ári. Nú er þriðja árið í röð sem verulegt tap er á rekstri bæjarins. Það er án fordæma.“
Njáll Trausti segir að aðhald vanti. Áhugavert sé að tapreksturinn eigi sér stað á sama tíma og útsvarstekjur hafi streymt inn í bæjarsjóð vegna útgreiðslna á séreignarsparnaði. Er þar um nokkra tugi millljóna að ræða. „Menn verða að vakna.“
L-listinn gerir ráð fyrir hagnaði
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar gerir ráð fyrir 529,4 milljóna króna hagnaði árið 2014 eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Jafnframt hefur meirihlutinn lagt fram þriggja ára áætlun áranna 2015-2017. Rætt var um áætlunina í bæjarstjórn Akureyrar 5. nóvember sl. en síðari umræð verður 17. desember nk. Eitt af því sem Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi L-listans, hefur rætt er sala fráveitu.
Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf., Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.
Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 10.045,6 millj.kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 52,9% Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 28,7% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins eru áætlaðar 575 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.040 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2013 eru skatttekjurnar áætlaðar 554 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 990 þús.kr.
Vantar hugrekki
„Fjárhagsáætlunin sem L-listinn leggur fram fyrir árið 2014 er í sjálfu sér ekkert frábrugðin þeim sem lagðar hafa verið fyrir á kjörtímabilinu. Ákveðinnar bjartsýni gætir og fyrirhugað er að greiða niður skuldir. Þetta væri hið besta mál ef fyrri fjárhagáætlanir kjörtímabilsins hefðu gengið eftir en svo hefur ekki verið og staðan sem L-listinn hefur komið okkur í er grafalvarleg,” segir Andrea Hjálmsdóttir oddviti VG.
„Á síðustu tveimur árum hefur verið tap á A hluta bæjarsjóðs og stefnir í að afkoman verði langt undir væntingum á þessu ári líka. Þrátt fyrir það sjást engin merki þess í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun að núverandi meirihluti telji ástæðu til að vinna sérstaklega að breyttum áherslum sem geti snúið þessari þróun á rekstri bæjarsjóðs við.”
Andrea segir að núverandi meirihluti hafi boðað breytta stjórnsýsluhætti og nýjar áherslur í rekstri bæjarins. „Því veldur það vonbrigðum að við sjáum ekki með skýrari hætti þessi nýju vinnubrögð. Hér hefði þurft að fara í róttæka uppstokkun á forgangsröðun fjármuna en það hugrekki sem þarf til slíkra breytinga hefur meirihlutinn ekki sýnt.”
-BÞ





