Kaupfélag Þingeyinga hefur boðað til málþings um framtíð samvinnustarfs á Íslandi og tækifærin sem rekstrarformið getur boðið á ýmsum sviðum samfélagsins. Málþingið verður haldið í Safnahúsinu á Húsavík á morgun, laugardag 16. nóvember, og hefst kl. 14. Á málþingu verða haldin fimm erindi áður en umræður hefjast.
Skúli Skúlason, stjórnarformaður Samkaupa, horfir út í heim, þar sem samvinnuformið á enn sterkar rætur, og lýsir stefnumótun Kaupfélags Suðurnesja. Jón Sigurðsson, fyrrv. ráðherra, ræðir um félagsskipan, stjórnskipan og fjárhagsskipan samvinnufélaga, og Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra um áform stjórnvalda og möguleg tækifæri við að nýta samvinnuformið til uppbyggingar. Þá ræðir Magnús Sveinn Helgason sagnfræðingur um Samvinnuhreyfinguna og neytendur og að lokum fjallar Gunnar Gunnarsson, stjórnarmaður í Kaupfélagi héraðsbúa, KHB, um starfsemi þess í hundrað ár og spurninguna hvað taki svo við.




