Rétt fyrir hádegi í dag fékk lögreglan á Akureyri tilkynningu um að bifreið hefði verið ekið út í sjó við Drottningarbrautina. Þegar lögreglan kom á vettvang var ökumaður ennþá inni í bifreiðinni og sat í sjó upp á mitti og virtist illa áttaður. Ekki er vitað hvort ökumaður fékk aðsvif en samkvæmt fyrstu tilkynningu til lögreglunnar var hann meðvitundarlaus.
Ökumaður var fluttur á sjúkrahúsið til aðhlynningar en er nú kominn heim til sín ómeiddur.
Lögregla segir viðbrögð vegfarenda hafa verið til fyrirmyndar en búið var að binda bílinn og tveir menn höfðu vaðið sjó upp í mitti út að bílnum til að athuga með ökumanninn áður en lögregla og sjúkrabíll komu á staðinn
-SBS




