Erling Ingvason, frambjóðandi Dögunar, sem skipaði 2. sætið á lista flokksins í NA-kjördæmi fyrir alþingiskosningar í vor, segir það „klikkaða“ hugmynd ef gefa eigi útgerðum fiskkvóta. Þar vísar hann til makrílsins en Erling segir að nú árið 2013 sé það enn fjarstæðukenndara en þegar útgerðum var gefinn fiskikvóti árið 1990.
„Nú eru skipin miklu, miklu afkastameiri og færri menn þarf til að manna þessi stóru skip. Það er bara tímaspursmál hvenær útgerðirnar hjóla í hlutaskiptakerfið og þá verður hagnaður þeirra af því að sækja í sameiginlegar auðlindir æ meiri og aðstaða þeirra til lobbíisma þeim mun sterkari og viðspyrna almennings erfiðari,“ segir Erling.
Hörð átök eru um makrílinn. Útgerðarmenn ýmist svara ekki fyrirspurnum fjölmiðla eða kvarta undan skilningsleysi í samfélaginu. Erling segist sjá þess merki að PR-herferðir verði æ stærri þáttur í umræðunni og sumar valdi almennri hneykslan í þjóðfélaginu. „Útboð á kvótunum er í anda frjálsrar samkeppni og heilbrigðra viðskiptahátta, það er ámátlegt að horfa upp á frjálslynda og hægri menn verja þetta pilsfaldakapítalíska kerfi,“ segir frambjóðandi Dögunar.
-BÞ









