Ákveðið hefur verið að bjóða fram undir merkjum Bjartrar framtíðar á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Í síðustu Alþingiskosningum bauð flokkurinn fram á landsvísu. Fékk Björt framtíð 6.4% í Norðurlandskjördæmi Eystra og einn þingmann, Brynhildi Pétursdóttur.
Björt framtíð boðar til stofnfundar bæjarmálafélags Bjartrar framtíðar á Akureyri, á Hótel Kea, þriðjudaginn 4. febrúar kl 20:00. Á fundinum verða þeir sem standa að stofnun BF á Akureyri auk þingmanna flokksins.
Björt Framtíð hefur nú þegar ákveðið að bjóða fram í nokkrum sveitarfélögum á landinu, til að mynda í tveimur stærstu sveitarfélögum landsins. Reykjavík og Kópavogi.
Samkvæmt heimildum akv.is er uppstillingarnefnd framboðsins að störfum við að setja saman framboðslista og gengur vinnan ágætlega. Preben Jón Pétursson, núverandi formaður skólanefndar fyrir meirihluta L-listans, var potturinn og pannan á bak við framboð Bjartrar Framtíðar til Alþingis í kjördæminu sl. vor. Hann er einnig einn af forsvarsmönnum bæjarmálahópsins sem nú á að setja á laggirnar.








