Sveinn Elías Jónsson hefur, fyrir hönd leikmanna meistarflokks Þórs, sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
Yfirlýsing leikmanna Þórs vegna fréttar Akureyri vikublaðs 29.01.2014
Alvarlegar ásakanir voru bornar á mig og mína liðsmenn í gær í frétt Akureyri vikublaðs. Til þess að svara þessum orðrómi sem af því er virðist heimildarlaus slúðurfrétt staðfesti ég fyrir hönd allra leikmanna Þórs sem voru á leikskýrslu í umræddum leik við uppeldisfélag mitt Dalvík/Reyni að enginn okkar veðjaði á umræddan leik, hvort sem um úrslit eða önnur atvik leiksins ræðir.
Við leggjum okkur fram við að stunda íþrótt okkar af kappi og standa okkur vel, vera yngri iðkenndum góðar fyrirmyndir og síðast en ekki síst að vera félagi okkar, Íþróttafélaginu Þór og stuðningsmönnum til sóma og bar þessi frétt mikinn skugga á það.
Ég vil miðla til fjölmiðla að vanda vinnubrögð sín og hafa staðfestar heimildir fyrir fréttum sem birtar eru í þessum anda, sem virðast aðeins til þess fallnar að mynda fyrirsagnir og hneyksla almenning.
Fyrir hönd leikmanna meistaraflokks Þórs í knattspyrnu,
Sveinn Elías Jónsson
Fyrirliði Meistaraflokks
Athugasemd blaðsins: Blaðið hefur traustar heimildir úr ólíkum áttum vegna fréttar Akureyrar Vikublaðs sem kom út í morgun 30. janúar. Tekið skuli þó fram að fréttin fjalli um vísbendingar en ekki sannanir. Viðmælendur sem hafi ætlað að koma fram undir nafni hafi rétt áður en blaðið fór í prentun óskað nafnleyndar vegna ótta um að stíga fram. Blaðið virðir trúnað við heimildarmenn, enda sé þar um lögverndaða skyldu fjölmiðla að ræða.








