Bílaleigubíll á sumardekkjum valt með þrjá innanborðs

Stórhætta skapaðist á Moldhaugnahálsinum, rétt norðan Akureyrar, um miðnættið í gærkveldi. Þar hafði myndast flughálka. Bílaleigubíll á sumardekkjum valt á hálsinum með þrjá útlendinga innanborðs. Þegar Lögregla og sjúkrabíll voru komin á vettvang kom flutningabíll aðvífandi á leið til Akureyrar, fulllestaður, og þurfti að stöðva í brekkunni rétt áður en hann náði á hálsinn. Við það komst hann hvorki lönd né strönd.

Forvitinn íbúi á Akureyri fylgdi sjúkrabíl og lögreglu á slysstaðinn og lenti hann einnig í erfiðleikum með að snúa við og koma sér til baka. Við það skapaðist nokkurt öngþveiti og voru lögreglumenn á staðnum í á þriðju klukkustund að greiða úr flækjunni.

Lögreglan á Akureyri segir að þarna hafi verið glærahálka og færðin erfið viðureignar. „Dekkjabúnaður bílaleigubílsins var ekki í samræmi við aðstæður og íslenska veðráttu. Svona dekkjabúnaður er ekki bjóðandi ökumönnum, og hvað þá útlendingum sem eru kannski ekki vanir slíkum aðstæðum“

Lögreglan á Akureyri mat ástandi á þá vegu á slysstað að það þyrfti aðstoð Vegagerðarinnar við að sanda hálsinn. Vegagerðin neitaði að verða við ósk Lögreglunnar um að tryggja öryggi á veginum með þeim rökum að vegna niðurskurðar færu þeir ekki í útköll svona seint. Yrði því að bíða eftir því að starfsmenn Vegagerðarinnar færu út milli 5 og 6 í fyrramálið.

Ekki náðist í upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar við vinnslu fréttarinnar.

Oddur Helgi Halldórsson

Bænum er vel stjórnað

Frá því L-listinn náði meirihluta árið 2010 hefur margt batnað hér í bæ. Við höfum komið verkefnum af stað og klárað. Verkefnum sem lengi höfðu verið ... Lesa »

Hlynur sýnir á Siglufirði

Hlynur Hallsson opnar sýninguna „Alþýðusýning í Alþýðuhúsinu“ á Siglufirði laugardaginn 8. mars kl. 14-17. Hlynur sýnir nokkur alþýðleg spreyverk ... Lesa »

Sjósund í djúpum skít?!

Niðurstöður úr sjósýnatökum meðfram strandlengjunni á Akureyri þann 21.janúar sl. sýna að magn saurkólíbaktería er yfir viðmiðunarmörkum á flestum ... Lesa »

Unglingarnir okkar bera af

Mjög lítil kannabisnotkun er meðal barna í 10. bekk á Akureyri. Drykkja ungmenna er lítil og fleiri stelpur drekka ekki en áður. Jafnmargar stelpur og ... Lesa »

Ólafsstofa á huldu

Þann 1. mars 2013, á málþingi um Ólaf Jóhannesson sem haldið var af Framsóknarflokknum tilkynnti Ágúst Þór Árnason, þáverandi deildarformaður ... Lesa »

Stofa til heiðurs fyrrum formanni framsóknar við HA

„Þau ánægjulegu tíðindi áttu sér stað að Ágúst Þór Árnason, deildarformaður lagadeildar Háskólans á Akureyri, tilkynnti formlega á málþinginu að sett ... Lesa »

Björn Þorláksson

Hvers konar rök eru þetta?

Í tilkynningu sem fjölmiðlum barst frá Vegagerðinni 26. febrúar síðastliðinn sagði að fækka yrði snjómokstursdögum á Möðrudalsöræfum „í bili“ og vegum ... Lesa »

KEA hótel eignast hótelbygginguna

KHG European Hospitality Partners, í eigu Valdimars Jónssonar, sonar Jóns Ragnarssonar, upphafsmanns hótelrekstrar á Skútustöðum, hefur framselt KEA ... Lesa »

Opinn borgarafundur SÁÁ í Hofi

SÁÁ, samtök áhugafólksum áfengisfíkn, efnir til opins borgarafundar um áfengis- og vímuefnavandann í Menningarhúsinu Hofi, í kvöld, miðvikudaginn 5. ... Lesa »

HA og AkureyrarAkademían í samstarf

Háskólinn á Akureyri og AkureyrarAkademían skrifuðu í gær undir samstarfssamning til næstu þriggja ára. Markmið samningsins er að efla samstarf og ... Lesa »

Konur fleiri en karlar í Fjallabyggð

Hagstofan hefur gefið út tölur um íbúa sveitarfélaga árið 2014. Þar kemur fram að Akureyringum fjölgar um 137 frá árinu 2013. Íbúum Eyjfjarðar fjölgar ... Lesa »

Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir framboðslista

Sjálfstæðisflokkurinn hefur samþykkt tillögu kjörnefndar um framboðslista til sveitarstjórnarkosninganna í maí. Eins og áður hefur komið fram er ... Lesa »

Fékk að vita af fyrirhuguðum styrkveitingum á fundi með framsóknarmönnum

Fjarðabyggð fékk þrjá styrki frá forsætisráðuneytinu í tengslum við varðveislu menningarminja. Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar ... Lesa »

Margrét Kristín leiðir lista BF á Akureyri

Björt framtíð hefur gefið út hverjir skipa efstu þrjú sætin á framboðslistanum til sveitarstjórnarkosninga í vor. Fundur Bjartrar framtíðar stendur nú ... Lesa »