Vegagerðin játar mistök

Vegagerðin

Lögreglan á Akureyri óskaði eftir aðstoð Vegagerðarinnar um miðnætti í gær vegna glærahálku sem hafði myndast á Moldhaugnahálsinum, rétt norðan Akureyrar. Vegagerðin varð ekki við beiðni lögreglunnar og taldi sig ekki geta farið í verkefnið sökum niðurskurðar.

G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir það hafa verið mistök af hálfu þeirra að fara ekki í þetta verkefni að hálkuverja um leið og lögregla óskaði eftir aðstoð. „Það voru mistök af okkar hálfu að hafna beiðni lögreglu á þessum tíma. Það hefur verið óskráð regla hjá okkur að bregðast við óskum lögreglu. Ef lögregla metur aðstæður þannig að um hættu sé að ræða höfum við alltaf farið í þau verk að tryggja öryggi eins fljótt og við getum. Við höfum alltaf unnið í góðu samstarfi við lögreglu og hörmum þessi mistök“ sagði G. Pétur í samtali við akv.is.

„Nú munum við fara yfir verklag og verkferla hvað þetta varðar og hnykkja á þessari óskráðu reglu hjá okkur að sinna kalli lögreglu“

Illa búinn bílaleigubíll fór út af veginum um miðnættið og valt með þrjá ferðamenn innanborðs. Bílaleigubíllinn var á sumardekkjum. Þegar lögregla og sjúkraflutningamenn voru á vettvangi þurfti fulllestaður flutningabíll að stöðva í brekku. Við það komst hann hvorki lönd né strönd og þurfti að keðja flutningabílinn í brekkunni. Lögreglan var á vettvangi í á þriðju klukkustund við að tryggja öryggi ég veginum.

Sveitarfélag, til hvers?

Upphafið Eftir því sem ég best veit er hreppurinn, og síðan arftaki þess sveitarfélagið, ein elsta skipulagða opinbera samfélagseining hér á landi. Þegar ég var að grufla upp eitthvað um tilganginn ... Lesa »

Bleikjan lifir af sleppingar

Erlendur Steinar Friðriksson heldur meistaravörn sína á morgun í fyrirlestrarsal Háskólans á Akureyri. Verkefni Erlends Steinar nær til meistaragráðu í auðlindafræðum og nefnist Veiða og sleppa sem ... Lesa »

Silja Björk

Listin að læra að elska sjálfan sig

Mörgum reynist sú list, að elska sjálfan sig, ákaflega flókin en mikilvægasta lexía sem nokkur maður getur lært er að engan getur þú elskað – fyrr en þú elskar sjálfan þig. Lífið er spil og svona ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Í ham

Systursonur minn sem er sálfræðingur lýsti einu sinni fyrir mér á myndrænan hátt hvernig kona sem var sjúklega hrædd við köngulær yfirsteig ótta sinn með hugrænni atferlismeðferð. Hann upplifði þetta ... Lesa »

Naustaskóli sendir tvö lið í Legóhönnunarkeppni

Naustaskóli sendir tvö lið til keppni í Legokeppninni „FirstLegoLeague“ sem haldin verður í Háskólabíói á morgun laugardaginn 1. febrúar. Liðin samanstendur af átta drengjum í 8. bekk og átta drengjum ... Lesa »

Hreyfingarleysi stéttskiptir fjölskyldum

Jóhannes Gunnar Bjarnason, íþróttakennari á Akureyri, lýsir þungum áhyggjum af hreyfingarleysi Íslendinga á síðustu tímum, einkum hreyfingarleysi ungmenna. Hann hefur rætt við suma þingmenn ... Lesa »

Aðsend grein: Drög að uppsagnarbréfi

Þrjú listaverk sem ég hef velt fyrir mér upp á síðkastið knúðu mig til að skrifa þetta bréf um starf mitt sem framhaldsskólakennari, þáttaröðin Breaking Bad, ævisagan Fátækt fólk eftir Tryggva ... Lesa »

KSÍ krefur liðin um upplýsingar

Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að Knattspyrnusamband Íslands muni láta fara fram skoðun á því hvort leikmenn Þórs hafi veðjað fé á eigin viðureign um miðjan mánuðinn þar sem Þór sigraði ... Lesa »

Yfirlýsing frá leikmönnum Þórs

Sveinn Elías Jónsson hefur, fyrir hönd leikmanna meistarflokks Þórs, sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: Yfirlýsing leikmanna Þórs vegna fréttar Akureyri vikublaðs 29.01.2014 Alvarlegar ásakanir ... Lesa »

Andrea Hjálmsdóttir hættir í bæjarstjórn

Andrea Hjálmsdóttir, oddviti VG í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar, ætlar ekki að gefa kost á sér áfram í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Hún segir að persónulegar ástæður séu fyrir því að hún stigi ... Lesa »

Ásakanir um lýðskrum lýsi getuleysi

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar kom saman til fundar nýverið til að ræða niðurstöðuna úr atkvæðagreiðslunni um kjarasamning Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambands Íslands sem Framsýn á ... Lesa »

ESB-aðild bjargi verslun

„Þetta lagast ekki nema við skiptum um gjaldmiðil og göngum í ESB,“ segir Ragnar Sverrisson, formaður Kaupmannafélags Akureyrar um fækkun verslana á Akureyri. Eins og fram hefur komið hefur hátt í ... Lesa »

Leikmenn ógni fótboltanum með veðmálum og siðleysi

Vísbendingar eru um að sumir leikmanna Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri hafi í leik gegn Dalvík á dögunum veðjað á leik sem þeir sjálfir tóku þátt í 13. janúar sl. Um ræðir leik í svokölluðu ... Lesa »

Björn Þorláksson

Ljóta leikritið!

Það hefur ekki verið neinn útvarpsstjóri fyrir Akureyringa síðustu ár. Eitt af flaggskipum stofnunarinnar, svæðisstöðin á Akureyri, var lögð af eftir hrun. Áður höfðu daglegar fréttir og stundum oft á ... Lesa »

Nemanda í VMA misboðið

Steinunn Ósk Leifsdóttir, nemandi í Verkmenntaskólanum á Akureyri, var ósátt við skólann sinn í gær og skrifaði opið bréf á facebook síðu sína. Bréfið birtist hér í heild sinni með góðfúslegu leyfi ... Lesa »

Vegagerðin játar mistök

Lögreglan á Akureyri óskaði eftir aðstoð Vegagerðarinnar um miðnætti í gær vegna glærahálku sem hafði myndast á Moldhaugnahálsinum, rétt norðan Akureyrar. Vegagerðin varð ekki við beiðni lögreglunnar ... Lesa »

Bílaleigubíll á sumardekkjum valt með þrjá innanborðs

Stórhætta skapaðist á Moldhaugnahálsinum, rétt norðan Akureyrar, um miðnættið í gærkveldi. Þar hafði myndast flughálka. Bílaleigubíll á sumardekkjum valt á hálsinum með þrjá útlendinga innanborðs. ... Lesa »

Hríseyjarskóli vinnur til verðlauna

Hríseyjarskóli hefur í vetur tekið þátt í verkefni Landsbyggðarvina, en Landsbyggðarvinir er félag sem býður nokkrum skólum ár hvert upp á verkefni þar sem unnin er hugmyndavinna til að styrkja ... Lesa »

Tónar úr Gullna hliðinu á Backpackers

Miðvikudaginn 29. janúar kemur fram Hljómsveitin Eva, sem er skipuð þeim Völu Höskuldsdóttur og Sigríði Eir Zophaníasardóttur. Þær hafa getið sér gott orð fyrir tónlistina í Gullna Hliðinu hjá ... Lesa »

Fjórir sveinar fá viðurkenningu

Fjórir nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri sem luku sveinsprófum á árinu 2013 hljóta nk. laugardag, 1. febrúar, viðurkenningar Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík fyrir afburða árangur á sveinsprófum ... Lesa »

Björt framtíð býður fram á Akureyri

Ákveðið hefur verið að bjóða fram undir merkjum Bjartrar framtíðar á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Í síðustu Alþingiskosningum bauð flokkurinn fram á landsvísu. Fékk Björt framtíð 6.4% ... Lesa »

Kaldavatnslögn gaf sig í Giljahverfi

Síðdegis í dag gaf sig kaldavatnslögn í Drekagili er eru nú öll hús við Drekagil vatnslaus nema hús nr. 21. Óvíst er hvenær viðgerð lýkur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðurorku. Þar ... Lesa »

Akureyringar í samnorrænu leiklistarverkefni

Leikklúbburinn Saga sem Akureyringum er að góðu kunnur verður með í samnorrænu verkefni sem nefnist Fenris sumarið 2014. Fenris er norrænt unglingaleikhús en fyrsta Fenris-verkefnið var sýnt árið ... Lesa »

Skógræktarmenn horfa til Húsavíkur

Áhugamenn um skógrækt á Íslandi horfa til þess að PCC verksmiðja á Bakka á Húsavík gæti þurft mikið magn af viði úr íslenskum nytjaskógum. Pétur Halldórsson sem starfar hjá Skógrækt ríkisins segir að ... Lesa »

Lof og last vikunnar

Lof og last vikunnar

Lof fær íslenska handboltaliðið fyrir frábæra frammistöðu á Evrópumótinu, skrifar karl á Akureyri í bréfi til blaðsins. Hann segir að strákarnir okkar vinni iðulega þrekvirki með því að skemmta ... Lesa »

Skoða meira