Andrea Hjálmsdóttir, oddviti VG í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar, ætlar ekki að gefa kost á sér áfram í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Hún segir að persónulegar ástæður séu fyrir því að hún stigi til hliðar. Hún segist þó ekki vera hætt afskiptum af íslenskum stjórnmálum né innan vébanda Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.
Andrea hefur setið í bæjarstjórn á Akureyri í fjögur ár. Hún er einnig lektor við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Hún lauk B.A. prófi í samfélags- og hagþróunarfræðum við HA og M.A. prófi í félagsfræði við háskólann í Bresku- Kólumbíu í Kanada.
Edward Huijbens er varabæjarfulltrúi VG en hann er jafnframt varaþingmaður fyrir NA-kjördæmi. Frestur til að gefa kost á sér í 5 efstu sæti lista VG á Akureyri rennur út í kvöld en kosið verður á valfundi þann 22. febrúar næstkomandi. Aðeins félagar í Vinstrihreyfingunni grænu framboði geta kosið og geta skráð sig eigi síðar en 10 dögum fyrir valfundinn eða 12. febrúar.
Kjörgengir eru íbúar Akureyrar, Hríseyjar og Grímseyjar sem hafa kosningarétt í bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum sem fram faraþann 31. maí í vor.
Hér er fréttatilkynning Andreu í heild sinni:
Eftir langa og stranga yfirlegu hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér til að leiða lista VG áfram fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. Þetta var mjög erfið ákvörðun að taka en að vinna fyrir Akureyringa þessi síðustu ár fjögur ár hefur verið krefjandi, lærdómsríkt og sérlega skemmtileg. Ákvörðun mín er tekin út frá persónulegum ástæðum. Breyttar aðstæður hafa knúið mig til að endurskoða forgangsröðun þeirra verkefna sem lífið býður upp á. Ég hef því ákveðið að snúa mér að öðrum verkefnum. Ég er þó ekki hætt afskiptum af stjórnmálum, ég mun starfa áfram á vettvangi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og trúi því að stefna VG sé sú mannúðlegasta sem íslensk stjórnmál bjóða uppá og mun því halda áfram að vinna henni framgöngu.








