Hrun L-listans vekur undrun bæjarfulltrúa

„Þetta eru góð tíðindi fyrir Bjarta framtíð og sýnir okkur að við erum á réttri leið. Það er eftirspurn eftir öðrum áherslum í pólitík, skemmtilegri pólitík þar sem áhersla er lögð á vinnubrögð en ekki þvinga í gegn stór kosningarloforð sem oft á tíðum sundra samfélaginu. Næstu skref eru að auglýsa opinn stofnfund og gefa fólki tækifæri til að koma að starfinu strax í upphafi og hafa þannig áhrif á samfélagið sem við viljum búa í. Við eigum alveg eftir að útfæra það hvernig staðið verður að framboðslista hjá okkur, fyrst er að halda stofnfund og sjá hverjir vilji taka þátt, þetta skýrist allt með hækkandi sól,“ segir Preben Pétursson, varaþingmaður Bjartrar framtíðar í NA-kjördæmi vegna nýrrar fylgiskönnunar.

„Það kemur helst á óvart hversu gífurlega miklu fylgi L listinn tapar samkvæmt þessu,“ segir Logi Már Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar á Akureyri um niðurstöður skoðanakönnunar sem Félagsvísindastofnun hefur unnið og birtist í Morgunblaðinu um helgina.

Könnunin sýnir að L-listinn fengi einn bæjarfulltrúa ef kosið yrði nú til sveitarstjórnar á Akureyri og virðist hrun L-listans öllum þeim oddvitum flokkanna á Akureyri sem blaðið leitaði viðbragða hjá efst í huga. Þá þurrkast Bæjarlistinn, sem Sigurður Guðmundsson leiðir, nánast út, fengi aðeins 1,7% atkvæða og engan fulltrúa í bæjarstjórn samkvæmt mælingunni.

Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi og oddviti Bæjarlistans, segir að niðurstaða könnunarinnar sé ekki í takt við hans tilfinningar. „Að meirihlutinn falli svo hátt fyrir litlar sakir er skrýtið.“

Sigurvegarar í könnun Félagsvísindastofnunar eru Sjálfstæðisflokkur og Björt framtíð. Sjálfstæðismenn fengju þrjá menn í stað eins í bæjarstjórn nú og Björt framtíð fengi tvo. „Fylgi Bjartrar framtíðar skil ég ekki þegar ekki er til stefnuskrá og enginn veit hver leiðir listann. Það sýnir kannski svart á hvítu hina óheilbrigðu tengingu lands- og sveitarstjórnarpólitíkur. Verk manna eru lítils metin þegar kemur að könnunum,“ segir Sigurður Guðmundsson.

Ólafur Jónsson, oddviti sjálfstæðismanna segir að mælingin hafi verið í samræmi við tilfinningu sjálfstæðismanna. „Enda höfum við fundið fyrir vaxandi stuðningi við okkar málflutning og þau mál sem við höfum lagt áherslu á. Það er ánæjulegt að hafa góðan byr og sjá að við erum að bæta við einum manni frá síðustu könnun og tveimur frá kosningum.“

Hann segir það koma helst á óvart að L-listinn sé kominn aftur á byrjunarreit samkvæmt þessu. Um Bjarta framtíð segir Ólafur að þar sé e.t.v. um að ræða „áhrif að sunnan“.

VG fengi 16% og bætti við sig öðrum fulltrúa. Sömu sögu er að segja af Framsóknarflokknum sem fengi 15,6%. Samfylkingin fengi 11% og héldi sínum eina fulltrúa í bæjarstjórn.

„Gott gengi Bjartrar framtíðar skýrist án efa af því að enn er umtalsvert vantraust á fjórflokknum. Þó er fylgið merkilega mikið miðað við það að enn er framboðið án andlits og stefnu,“ segir Logi Már Einarsson.

Um niðurstöðu eigin flokks segir Logi: „Ég hafði satt að segja lítið velt fyrir mér stöðunni fyrir þessa könnun en fannst þó að Samfylkingin væri aðeins að finna taktinn hérna í bænum. Samkvæmt þessari könnun er það greinilega misskilningur.Það er ljóst að við verðum að bretta upp ermar og bíta í skjaldarrendur ef jafnaðarstefnan á að verða annað en fögur orð á blaði næsta kjörtímabil.“

Geir Kristinn Aðalsteinsson sem leiddi L-listann þegar aflið fékk hreinan meirihluta og sem menn af ellefu, segist að sjálfsögðu hafa vonast eftir betri útkomu fyrir L-listann. Hann taki mark á þessari könnun eins og iðulega þegar skoðanakannanir eru annars vegar. „Þó að svarendur sem tóku afstöðu séu afar fáir, 264, ef ég man rétt, gefa slíkar kannanir alltaf ákveðnar vísbendingar og þær þurfum við L-listafólk að taka til okkar. Störf okkar eru ekki alltaf sýnileg og e.t.v. þurfum við að vera duglegri við að koma okkar störfum á framfæri við bæjarbúa.“

Geir segir það lága fylgismælingu Bæjarlistans einnig koma á óvart en aðra könnun þurfi með fleiri svarendum til að staðfesta að þetta sé raunveruleg staða. „Einnig kemur mér óvart mikið fylgi við Bjarta framtíð, þar sem að lítið sem ekkert er vitað um framboðið hér á Akureyri. Miðað við þessa niðurstöðu þá þarf þriggja flokka meirihluta á næsta kjörtímabili og þá læðist að manni sú hugsun hversu margir bæjarstjórar verða á Akureyri á kjörtímabilinu miðað við reynslu fyrri tíma.“

Andrea Hjálmsdóttir, oddviti VG á Akureyri, segir að VG megi vel við una í þessari mælingu Félagsvísindastofnunnar. „Það er alltaf erfitt að meta tilfinningu um fylgi flokka en það kemur mér ekki á óvart að L-listinn tapi fylgi, en tapið er þó meira en ég hafði reiknað með. Ég hafði ekki séð fyrir að það fylgi sem eftir er færi yfir á Bjarta framtíð með jafn skýrum hætti og könnunin sýnir. Þó fylgi Sjálfstæðisflokksins komi mér alltaf jafnmikið á óvart svona yfirleitt þá er aukning þeirra kannski minni tíðindi í ljósi stöðunnar í landsmálunum og augljóst er að kjósendur klofningsframboðsins Bæjarlistans ætla tilbaka. Það sem mér fannst þó áhugaverðast í þessari könnun er flokkshollusta kjósenda Bjartrar framtíðar því eins og fram kom ætla 80% þeirra sem kusu Bjarta framtíð í alþingiskosningunum að kjósa sama flokk í bæjarstjórn. Þetta slagar upp í flokkshollustu kjósenda Sjálfstæðisflokksins sem kemur þó mun minna á óvart í ljósi sögunnar. Fylgisaukning okkar í VG kemur ekki á óvart í ljósi þeirra verkefna sem kjósendur telja mikilvægustu í sveitafélaginu, en flest þeirra sem þátt tóku í könnuninni telja velferðar- og félagsþjónustu brýnustu verkefnin á Akureyri. Þar hefur VG skýra stefnu og hefur talað fyrir félagslegum áherslum í bæjarfélaginu.“

Ekki fengust viðbrögð frá Guðmundi Baldvini Guðmundssyni, oddvita framsóknarmanna á Akureyri.

-BÞ

Hreyfingarleysi stéttskiptir fjölskyldum

Jóhannes Gunnar Bjarnason, íþróttakennari á Akureyri, lýsir þungum áhyggjum af hreyfingarleysi Íslendinga á síðustu tímum, einkum hreyfingarleysi ungmenna. Hann hefur rætt við suma þingmenn ... Lesa »

Aðsend grein: Drög að uppsagnarbréfi

Þrjú listaverk sem ég hef velt fyrir mér upp á síðkastið knúðu mig til að skrifa þetta bréf um starf mitt sem framhaldsskólakennari, þáttaröðin Breaking Bad, ævisagan Fátækt fólk eftir Tryggva ... Lesa »

KSÍ krefur liðin um upplýsingar

Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að Knattspyrnusamband Íslands muni láta fara fram skoðun á því hvort leikmenn Þórs hafi veðjað fé á eigin viðureign um miðjan mánuðinn þar sem Þór sigraði ... Lesa »

Yfirlýsing frá leikmönnum Þórs

Sveinn Elías Jónsson hefur, fyrir hönd leikmanna meistarflokks Þórs, sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: Yfirlýsing leikmanna Þórs vegna fréttar Akureyri vikublaðs 29.01.2014 Alvarlegar ásakanir ... Lesa »

Andrea Hjálmsdóttir hættir í bæjarstjórn

Andrea Hjálmsdóttir, oddviti VG í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar, ætlar ekki að gefa kost á sér áfram í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Hún segir að persónulegar ástæður séu fyrir því að hún stigi ... Lesa »

Ásakanir um lýðskrum lýsi getuleysi

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar kom saman til fundar nýverið til að ræða niðurstöðuna úr atkvæðagreiðslunni um kjarasamning Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambands Íslands sem Framsýn á ... Lesa »

ESB-aðild bjargi verslun

„Þetta lagast ekki nema við skiptum um gjaldmiðil og göngum í ESB,“ segir Ragnar Sverrisson, formaður Kaupmannafélags Akureyrar um fækkun verslana á Akureyri. Eins og fram hefur komið hefur hátt í ... Lesa »

Leikmenn ógni fótboltanum með veðmálum og siðleysi

Vísbendingar eru um að sumir leikmanna Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri hafi í leik gegn Dalvík á dögunum veðjað á leik sem þeir sjálfir tóku þátt í 13. janúar sl. Um ræðir leik í svokölluðu ... Lesa »

Björn Þorláksson

Ljóta leikritið!

Það hefur ekki verið neinn útvarpsstjóri fyrir Akureyringa síðustu ár. Eitt af flaggskipum stofnunarinnar, svæðisstöðin á Akureyri, var lögð af eftir hrun. Áður höfðu daglegar fréttir og stundum oft á ... Lesa »

Nemanda í VMA misboðið

Steinunn Ósk Leifsdóttir, nemandi í Verkmenntaskólanum á Akureyri, var ósátt við skólann sinn í gær og skrifaði opið bréf á facebook síðu sína. Bréfið birtist hér í heild sinni með góðfúslegu leyfi ... Lesa »

Vegagerðin játar mistök

Lögreglan á Akureyri óskaði eftir aðstoð Vegagerðarinnar um miðnætti í gær vegna glærahálku sem hafði myndast á Moldhaugnahálsinum, rétt norðan Akureyrar. Vegagerðin varð ekki við beiðni lögreglunnar ... Lesa »

Bílaleigubíll á sumardekkjum valt með þrjá innanborðs

Stórhætta skapaðist á Moldhaugnahálsinum, rétt norðan Akureyrar, um miðnættið í gærkveldi. Þar hafði myndast flughálka. Bílaleigubíll á sumardekkjum valt á hálsinum með þrjá útlendinga innanborðs. ... Lesa »

Hríseyjarskóli vinnur til verðlauna

Hríseyjarskóli hefur í vetur tekið þátt í verkefni Landsbyggðarvina, en Landsbyggðarvinir er félag sem býður nokkrum skólum ár hvert upp á verkefni þar sem unnin er hugmyndavinna til að styrkja ... Lesa »

Tónar úr Gullna hliðinu á Backpackers

Miðvikudaginn 29. janúar kemur fram Hljómsveitin Eva, sem er skipuð þeim Völu Höskuldsdóttur og Sigríði Eir Zophaníasardóttur. Þær hafa getið sér gott orð fyrir tónlistina í Gullna Hliðinu hjá ... Lesa »

Fjórir sveinar fá viðurkenningu

Fjórir nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri sem luku sveinsprófum á árinu 2013 hljóta nk. laugardag, 1. febrúar, viðurkenningar Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík fyrir afburða árangur á sveinsprófum ... Lesa »

Björt framtíð býður fram á Akureyri

Ákveðið hefur verið að bjóða fram undir merkjum Bjartrar framtíðar á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Í síðustu Alþingiskosningum bauð flokkurinn fram á landsvísu. Fékk Björt framtíð 6.4% ... Lesa »

Kaldavatnslögn gaf sig í Giljahverfi

Síðdegis í dag gaf sig kaldavatnslögn í Drekagili er eru nú öll hús við Drekagil vatnslaus nema hús nr. 21. Óvíst er hvenær viðgerð lýkur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðurorku. Þar ... Lesa »

Akureyringar í samnorrænu leiklistarverkefni

Leikklúbburinn Saga sem Akureyringum er að góðu kunnur verður með í samnorrænu verkefni sem nefnist Fenris sumarið 2014. Fenris er norrænt unglingaleikhús en fyrsta Fenris-verkefnið var sýnt árið ... Lesa »

Skógræktarmenn horfa til Húsavíkur

Áhugamenn um skógrækt á Íslandi horfa til þess að PCC verksmiðja á Bakka á Húsavík gæti þurft mikið magn af viði úr íslenskum nytjaskógum. Pétur Halldórsson sem starfar hjá Skógrækt ríkisins segir að ... Lesa »

Lof og last vikunnar

Lof og last vikunnar

Lof fær íslenska handboltaliðið fyrir frábæra frammistöðu á Evrópumótinu, skrifar karl á Akureyri í bréfi til blaðsins. Hann segir að strákarnir okkar vinni iðulega þrekvirki með því að skemmta ... Lesa »

Hver er traustsins verður?

Sveitarstjórnamál snúast um lífsgæði íbúa. Ólík stjórnmálaöfl hafa ólíka sýn á hvernig á að horfa til framtíðar og hvaða hluti á að leggja mesta áherslu á að byggja upp. Ólík sýn á samfélagið er ... Lesa »

Hús vikunnar: Strandgata 35

Í síðustu viku tók ég fyrir Strandgötu 45 en nú færum við okkur spölkorn upp eftir Strandgötunni, nánar tiltekið að númer 35 en þar stendur annað glæsilegt stórhýsi. Húsið er eitt af elstu húsum ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Passíusálmar unga fólksins

Fátt er svo með öllu illt að ei boði nokkuð gott. Sumarið sem ég var 19 ára vann ég við ferðaþjónustuna á Hólum í Hjaltadal, það var fjörlegt sumar, mörg ungmenni að störfum og þar á meðal þýsk stúlka ... Lesa »

Akureyskar íþróttakonur á alþjóðlegu móti í London

Tveir íþróttamenn frá Crossfit Hamri, Birna Blöndal Sveinsdóttir og Arnþrúður Eik Helgadóttir, lögðu um síðustu helgi land undir fót og kepptu fyrir hönd Crossfit stöðvarinnar á leikunum „Battle of ... Lesa »

Norðurorka

Stórfjölgun rafbíla breytir engu um metanáform Norðurorku

Nýskráningum rafbíla fjölgaði um 258 prósent á síðasta ári miðað við árið 2011 á sama tíma. Sala á nýjum metanbílum dróst saman um 64 prósent á sama tímabili. Bifreiðum sem var breytt í metanbíla ... Lesa »

Skoða meira