Sumir stjórnenda hjá Akureyrarbæ hafa ákveðið að starfsmenn viðkomandi stofnana fái engar jólagjafir í ár. Ástæðan er sparnaður. Blaðið hefur heimildir um að sumum leikskólakennurum hafi verið sagt að þeir fái engar gjafir í ár. Sagði viðmælandi blaðsins úr kennarastétt að fólk væri slegið yfir þessu.
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að ákvörðun um að sveitarfélagið gæfi starfsmönnum sínum engar jólagjafir hafi verið tekin fyrir nokkrum árum af þáverandi yfirstjórn bæjarins. Nú hafi sumir yfirmenn tekið þennan sið upp aftur án þess að sameiginleg ákvörðun hafi verið tekin um slíkt. „Sumir starfsmenn hafa því fengið slíkar gjafir seinni ár en ekki allir. Erfitt er að réttlæta það,“ segir bæjarstjóri.
Hann segir að starfsmenn sveitarfélagsins standi sig almennt mjög vel í starfi og flestir hafi tekið virkan þátt í þeim hagræðingaraðgerðum sem sveitarfélagið hafi staðið fyrir. Spurður hvort það sé léttbærara að taka á sig byrðar í samdrætti ef starfsfólk fái klapp á bakið í formi jólagjafar segir bæjarstjóri að umbun til starfsmanna sé hægt að veita í öðru formi en með jólagjöfum.
„Rétt er að geta þess að flestir íbúar eru þátttakendur í hagræðingaraðgerðum bæjarins og eiga því skilið umbun fyrir. Þess vegna hefur sú ákvörðun verið tekin að veita öllum íbúum og þar með talið starfsmönnum sveitarfélagsins frían aðgang að sundlaugum bæjarins eina helgi í desember. Við getum kallað það jólabað Akureyringa. Viðburðurinn verður auglýstur síðar,“ segir bæjarstjóri.
-BÞ








