„Já, ég hef ákveðið að gefa kost á mér í efsta sæti listans í vor. Ég hef ekki heyrt um önnur framboð í efsta sætið en við framsóknarfólk kjósum í fimm efstu sæti á lista okkar á almennum félagsfundi,“ segir Guðmundur B. Guðmundsson, bæjarfulltrúi og oddviti framsóknarmanna á Akureyri.
Hvorki blaðinu né Guðmundi er kunnugt um aðra framsóknarmenn á Akureyri sem sækjast eftir fyrsta sætinu. Líkur eru því á að hann verði áfram oddviti flokksins en framsóknarmenn fengu aðeins einn mann síðast og hyggja á meiri sigra nú.
Kosið verður í fimm efstu sætin á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri í vor á almennum félags- fundi sem haldinn verður 15. mars nk.
Fyrst verður kosið í fyrsta sæti síðan koll af kolli þar til fimm sætum er náð. Til að ná kosningu þarf að ná meira en 50% atkvæða í sætið.
Áhugasamir tilkynni framboð til Jakobs Björnssonar formanns kjörstjórnar í síma 894-4280 eða á netfangið jakobakb@simnet.is fyrir 1. mars nk.
Óflokksbundnir sem vilja taka þátt í að kjósa á listann þurfa að sækja um inngöngu í framsóknarfélögin á Akureyri fyrir 13. febrúar nk. Einnig er hægt að skrá sig á www.framsokn.is.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson, oddviti og bæjarfulltrúi framsóknarmanna, segist gefa kost á sér áfram til að leiða flokkinn á Akureyri.
-BÞ























