Sveitarfélag, til hvers?

Ólafur Kjartansson

Upphafið
Eftir því sem ég best veit er hreppurinn, og síðan arftaki þess sveitarfélagið, ein elsta skipulagða opinbera samfélagseining hér á landi. Þegar ég var að grufla upp eitthvað um tilganginn með því að setja svona nokkuð á fót fannst mér það merkilegast að þarna var meðal annars vettvangur fyrir skipulagða samhjálp. Að sjálfsögðu í takt við aðstæður og anda hvers tíma en samhjálp engu að síður. Hreppurinn bar sameiginlega ábyrgð á því að enginn átti að þurfa að veslast uppi bjargarlaus. Ef einhver íbúi gat sannarlega ekki séð sér farborða áttu yfirvöld viðkomandi hrepps að sjá til þess að þessi einstaklingur dæi ekki úr vesöld. Skýr samfélagsleg pólitísk meining.

Þróunin
Síðan eftir því sem tímar hafa liðið hefur hlutverkum sveitarfélaganna fjölgað. Andinn hefur verið alla jafna sá að það sem skiptir miklu máli fyrir heildina á hverjum stað kemur til greina sem verkefni sem sveitarfélagið tekst á við. Þar má finna býsna fjölbreytilegan lista. Framfærslutryggingu, skólamenntun barna, umönnun aldraðra, heilsugæslu, samgöngubætur, hreint neysluvatn í hvert hús, rafmagn, upphitun húsa, að fjarlægja sorp og skít, útgerð til sköpunar atvinnu og verðmæta, stuðning við listalíf, mannbætandi tómstundastarfsemi og fleira og fleira. Þetta finnst mér algerlega fullnægjandi réttlæting á því að standa vörð um þessa samfélagseiningu sem sveitarfélagið er.

Hvað svo?
Næstu spurningar: Hvað er mikilvægast af þessu öllu og hver á að borga þetta allt saman?
Er eitthvað sem má missa sig eða vantar eitthvað? Viljum við borga jafnt á haus eða meira eftir því sem tekjurnar verða hærri hjá fólki eða eiga notendur að borga hver fyrir sig? Eða einhverskonar mismunandi eða blandað greiðslufyrirkomulag og þá hvernig?
Þar kemur pólitíkin enn einu sinni til sögu og röðin er komin að að kjósandanum. Hann þarf að átta sig á því hvernig útfærslu honum líst best á og reyna síðan að meta hverjir eru líklegastir til að framfylgja því.

Höfundur er áheyrnarfulltrúi vinstri grænna í umhverfisnefnd Akureyrar og starfsmaður í Hlíðarfjalli.

Agnir og ljós

Listakonurnar Mireya Samper og Mary Zompetti opna í dag hvor sína sýninguna, annars vegar í Gallerý Hvítspóa í Brekkugötunni og hins vegar í Populus ... Lesa »

Ólympíumenntskælingar

Nú er orðið ljóst að Menntaskólinn á Akureyri mun eiga fulltrúa á Alþjóðlegu Ólympíukeppninni í stærðfræði í Höfðaborg í Suður-Afríku og á Alþjóðlegu ... Lesa »

Sauðárkrókur. Mynd úr safni.

Atvinnulífssýning og Sæluvika á Sauðárkróki

Um helgina stendur yfir atvinnulífssýningin „Skagafjörður - lífsins gæði og gleði“ í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Eins og segir í fréttatilkynningu ... Lesa »

Bogfimisetrið opnar á Akureyri

Bogfimisetrið ehf mun opna bogfimisal til almennra nota á Akureyri í næstu viku. „Íslandsmeistaramótið er í gangi núna fyrir sunnan og þess vegna ... Lesa »

Alþjóðlegt konukaffi í Listagili

Alþjóðlegt konukaffi verður haldið í Listagili á morgun, laugardaginn 26. apríl. Samkomurnar eru nú orðnar að föstum lið í starfsemi Alþjóðastofu ... Lesa »

Uglan auglýsir styrki

Uglan, Hollvinasjóður Menntaskólans á Akureyri, auglýsir nú styrki til umsóknar. Styrkir hafa úr sjóðinum hafa nú verið veittir kennurum og nemendum ... Lesa »

Suðurflug opnar á Akureyrarflugvelli

Starfsstöð Suðurflugs hefur opnað á Akureyrarflugvelli. Suðurflug ehf hefur starfað á Keflavíkurflugvelli í 42 ár, fyrst sem leiguflugfélag og ... Lesa »

Geimdósin opin

Í Listagilinu stendur Geimdósin - gallerí og vinnustofa í umsjón Heklu Bjartar Helgadóttur, myndlistarkonu. Upp á síðkastið hefur Hekla fengist við ... Lesa »

Tækninám á háskólastigi á Akureyri

Í lok mars var undirritaður samningur VMA, Keilis í Reykjanesbæ og Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar um að hefja tækninám á háskólastigi frá og með ... Lesa »

Nýr ritstjóri Vikudags

Vikudagur hefur ráðið Þröst Erni Viðarsson sem nýjan ritstjóra og tekur hann við starfinu í byrjun júní. Þröstur er menntaður fjölmiðlafræðingur frá ... Lesa »

Verkfalli aflýst

Félag háskólakennara á Akureyri og Háskólinn á Akureyri hafa komist að samkomulagi um gerð stofnanasamnings. Frá þessu segir á síðu háskólans. Gert er ... Lesa »

Árekstur á Eyjafjarðarbraut

Árekstur varð á gatnamótum rétt hjá Leirubrúnni við Eyjafjarðarbraut eystri í dag. Tveir fólksbílar skullu saman og valt annar þeirra á hliðina. Einn ... Lesa »

Vorkoman í Ketilhúsi

Margt var um manninn í Ketilhúsinu þegar hin árlega Vorkoma Akureyrarstofu var haldin hátíðleg í dag og veitt voru verðlaun og ... Lesa »

Glerárdalsvirkjun

Á fundi skipulagsnefndar þann 16. apríl síðastliðinn var deiliskipulag virkjunar á Glerárdal rætt. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Minjastofnun ... Lesa »

Close
Please support the site
Fylgstu með okkur á facebook líka!