Leikskólinn Iðavöllur hefur tekið í notkun sérstaka gerð af stólum fyrir börnin. Stóllinn nefnist Glói. Kristlaug Þ. Svavarsdóttir leikskólastjóri segir að um ræði hönnun og smíði þar sem saman hafi lagt í púkk leikskólakennarar á Iðavelli, iðjuþjálfi og smiðir hjá fyrirtækinu Nomaco sem er staðsett stutt frá leikskólanum. Áður en ákveðið var að fara í þetta ferli hafi verið skoðaðir nokkrir stólar í boði fyrir þennan aldur. Verð þeirra hafi verið svipað eða hærra en á stólnum Glóa. Nomaco hafi áður smíðað fyrir Iðavöll t.d. tölvuborð fyrir börn og því hafi verið gengið til samninga.
Stóllinn er smíðaður úr birki krossviði sem er hlýlegt efni sem börnin fella sig vel við að sögn leikskólastjóra. Setstaðan er hönnuð með þeirra þarfir í huga. Börnin mátuðu oft stólinn meðan hann var í þróun og gáfu sitt álit. „Þeim líður vel í stólunum þar sem þau sitja í sem bestri stöðu sem hæfir þeirra líkamsbyggingu,“ segir Kristlaug.
-BÞ






















