Nemendur Verkmenntaskólans og Menntaskólans á Akureyri fjölmenntu á samstöðumálfund til stuðnings kjarabaráttu kennara klukkan 15 í dag í Kvosinni. Mikill og eindreginn stuðningur kom fram við að laun kennara yrðu leiðrétt en sjálfir tala kennarar um 17% hækkun á sama tíma og tilboð samninganefndar hljóðar upp á minna en 3%. Hvert sæti var setið í Kvosinni í húsnæði Menntaskólans á Akureyri og nam fjöldi nemenda mörgum hundruðum úr báðum skólum.
Jafnframt lýstu margir nemenda áhyggjum af afleiðingum kennaraverkfalls ef sú verður raunin. Kom m.a. fram að nemendur í húsasmíði sjá fram á að önnin ónýtist fyrir þá þótt verkfall yrði ekki langt, þar sem það tekur húsasmíðanema langan tíma að klára lokaverkefni. Fjallað verður um málfundinn í næsta tölublaði Akureyrar vikublaðs.
Á sama tíma og fundurinn fór fram kröfðust framhaldsskólanemar í Reykjavík launahækkunar kennara á Austurvelli.
-BÞ






















