Engin viðbrögð hafa fengist hjá Akureyrarbæ vegna áfellisdóms sem bærinn hefur fengið eftir að ákveðið var að ganga til samninga við fyrirtæki vegna uppsetningar 100 milljóna króna rennibrautar. Kærunefnd útboðsmála hefur tekið undir sjónarmið fyrirtækisins Spennandi ehf. gegn Fasteignum Akureyrarbæjar sem kærði Akureyrarbæ vegna útboðsmála. Kærunefnd útboðsmála úrskurðaði 24. janúar síðastliðinn og stöðvaði rennibrautarferlið.
Í úrskurði kærunefndar kemur fram að Spennandi ehf hafi kært innkaup Fasteigna Akureyrarbæjar á vatnsrennibraut og uppgöngustigahúsi við Sundlaug Akureyrar.
„Af gögnum málsins verður ráðið að hinn 28. ágúst 2013 hafi varnaraðili [Akureyrarbær] óskað tilboða frá átta tilgreindum aðilum, þ.á m. kæranda, í vatnsrennibrautir og uppgöngustigahús við Sundlaug Akureyrar án þess að um hafi verið að ræða opinbera auglýsingu. Voru kröfur varnaraðila settar fram í bréfi auðkennt „verðkönnun“ og skyldu bjóðendur skila inn tilboðum á svonefndum verðkönnunarblöðum. Bera gögn málsins með sér að tilboð hafi borist frá þremur aðilum, þ.á m. kæranda, og að hinn 19. desember 2013 hafi kæranda verið tilkynnt að varnaraðili hyggðist ganga til samninga við annan bjóðanda,“ segir í úrskurðinum.
Kæra kæranda byggði að meginstefnu á því að varnaraðila hafi borið að bjóða út innkaup á þeim vörum sem að framan eru greindar í samræmi við lög nr. 84/2007 um opinber innkaup. Það hafi hann ekki gert og breyti engu þó að varnaraðili hafi kosið að setja innkaup sín í búning verðkönnunar. Þá hafi varnaraðili sniðgengið lagalegar skyldur sem á honum hvíldu samkvæmt lögunum.
Í úrskurðinum segir að innkaup skuli fara eftir þeim innkaupaferlum sem tilgreind séu í lögum um opinber innkaup. Af gögnum málsins verði ekki ráðið að framangreind innkaup hafi farið fram í samræmi við þá innkaupaferla og þær reglur sem lög um opinber innkaup áskilja samkvæmt framangreindu. Hafi því verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup.
Með vísan til 1. mgr. 96. gr. laganna, sbr. 15. gr. laga nr. 58/2013, verði því fallist á kröfu kæranda um að framangreint innkaupaferli verði stöðvað, svo sem nánar greini um í ákvörðunarorðum. Að öðru leyti bíði efnisleg úrlausn kærunnar úrskurðar kærunefndar.
„Innkaupaferli varnaraðila, Fasteigna Akureyrarbæjar, vegna kaupa á vatnsrennibraut og uppgöngustigahús við Sundlaug Akueyrar samkvæmt verðkönnun 28. ágúst 2013, er stöðvað um stundarsakir,“ segir í niðurstöðu kærunefndar sem Skúli Magnússon og Ásgerður Ragnarsdóttir rita undir.
Bæjarstjóri vísaði fyrirspurn blaðsins til Odds Helga Halldórssonar, formanns Fasteigna Akureyrar, sem vísaði á bæjarlögmann.
-BÞ






















