Á fundi skipulagsnefndar Akureyrarbæjar nýverið kom fram að Umhverfisstofnun hefur með bréfi falast eftir upplýsingum vegna Glerárvirkjunar. Stofnunin telur að koma þurfi fram hvaða áhrif stífla og lón muni hafa áhrif á upplifun þeirra sem heimsækja svæðið.
Í svari skipulagsnefndar segir að gert sé ráð fyrir skipulögðum gönguleiðum umhverfis virkjunarsvæðið, stífluna og lónið. Umfang lónsins sé u.þ.b. 1 hektari og megi ætla að t.d. fuglalíf geti þrifist þar, sem ýti enn frekar undir jákvæða upplifun ferðamanna á umhverfi svæðisins.
Umhverfisstofnun vildi einnig vita umfang pípunnar og áhrif hennar á umhverfið. Þá bendir stofnunin á að umhverfis- og auðlindaráðherra sjái um breytingar á afmörkun svæðis á Náttúruminjaskrá en ekki sveitarfélög. Tilgreina þurfi í deiliskipulagstillögu ástæður þess hvers vegna svo mikið rými sé tekið frá af útivistarrými fyrir framkvæmdirnar sem og hvort önnur starfsemi sé áætluð í Réttarhvammi.
Þessu svarar skipulagsnefnd Akureyrarbæjar þannig að ekki sé þörf á að gera grein fyrir umfangi fallpípu í aðalskipulagi en þær upplýsingar muni verða tiltækar í deiliskipulagstillögu. Fallið sé frá því að breyta afmörkun tiltekins svæðis á náttúruminjaskrá en gert ráð fyrir að breyting verði gerð á skilmálum aðalskipulags, þannig að mannvirkjagerð verði heimil á svæðinu við Réttarhvamm vegna byggingar stöðvarhúss.
„Skipulagsnefnd telur eðilegt að nánasta umhverfi virkjunarsvæðisins verði deiliskipulagt með það í huga að aðgengi íbúa að svæðinu verði tryggt og að öruggt verði að fara um svæðið. Einnig var ákveðið að deiliskipuleggja nærsvæði fyrirhugaðs virkjunarhúss en því svæði hefur nú þegar verið raskað,“ segir m.a. í svari skipulagsnefndar.
-BÞ






















