Í 18.000 manna sveitarfélagi eru 12 útsölustaðir fyrir eldsneyti staðsettar í dag og sú þrettánda í burðarliðnum, metangasstöð við Súluveg. Þessi fjöldi útsölustaða í þessum litla bæ hefur oft ratað á tungur bæjarbúa og þykir mörgum nóg um. Nú er svo komið að fjöldi bensínstöðva á Akureyri á hvern íbúa er meiri en í Bandaríkjunum sem hefur verið annáluð fyrir einkabílisma.
Akureyrarbær hefur ekki markað sér neina stefnu hvað varðar útsölustaði á eldsneyti, eða bensínstöðvar eins og þær eru oftast kallaðar. Fréttamaður akv.is hafði samband við Pétur Bolla Jóhannesson, skipulagsstjóra Akureyrarbæjar um fjölda bensínstöðva í bæjarlandinu.
„Skipulagsdeild er ekki með tölur yfir það, þetta er bara eins og hvert annað byggingarmál, hvert mál er vegið og metið í hvert sinn sem það kemur á borð skipulagsdeildar. Það hefur engin stefna verið mörkuð í þeim efnum. Ég held þú verðir bara að telja þær. Í aðalskipulagi sést hvar sé íbúðarbyggð hvar sé þjónusta og þar fram eftir götunum. Bensínstöðvar eru eins og hver önnur þjónusta.“ Segir Pétur Bolli, skipulagsstjóri.
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir að mikið offramboð sé á útsölustöðum eldsneytis í þéttbýli á Íslandi. „Það sem við höfum gagnrýnt er að á sama tíma og kerfisbundin fækkun á sér stað í Danmörku til dæmis, er þróunin allt önnur hér á landi. Nú er svo komið að bensínstöðvar í þéttbýli á Íslandi eru þrisvar sinnum fleiri en í Danmörku. Það sem skiptir hvað mestu máli er að einhver þarf að borga fyrir framboðið og það hlýtur að vera neytandinn sjálfur sem greiðir fyrir þetta á endanum.“ Segir Runólfur.
„Útsölustaði eldsneytis má líta á sem takmörkuð gæði. Stóru gömlu olíufélögin sitja að ákveðnum gæðum þar sem þau liggja á bestu stöðunum í þéttbýli í dag. Það gerir líka erfitt fyrir nýja aðila að hasla sér völl á markaðnum og þurfa kannski að finna sér stað frá þeim kjörnum þar sem ákjósanlegast væri að selja eldsneyti. Kerfið er því nokkuð samkeppnishamlandi. Réttast væri að bjóða út þessi gæði á nokkurra áratuga fresti“. Bætir Runólfur við.
-SA






















