Staða háskólarektors á Akureyri hefur verið auglýst laus til umsóknar. Upphaf starfstíma er 1. júlí 2014. Rektor starfar í umboði háskólaráðs en í auglýsingu segir m.a. að starf rektors kalli á doktorsgráðu, hann beri ábyrgð á og hafi eftirlit með allri starfsemi háskólans og beri ábyrgð á framkvæmd stefnu háskólans.
Stefán B. Sigurðsson er rektor HA. Stefán lauk Doktorsprófi frá læknadeild háskólans í Lundi í Svíþjóð árið 1980. Stefán er fæddur árið 1948 og er því á 66. aldursári.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.
-BÞ






















