Sóley Björk Stefánsdóttir er talin eiga góðan möguleika á efsta sætinu hjá VG á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor eftir að Andrea Hjálmsdóttir tilkynnti að hún myndi hætta, eins og fyrst kom fram í Akureyri vikublaði í síðustu viku. „Já, ég mun gefa kost á mér í fyrsta sætið“ Segir Sóley Björk.
Edward Huijbens, varabæjarfulltrúi VG, segist gefa kost á sér í efstu sæti en ekki endilega aðeins í efsta sætið. Þátttaka hans í pólitík á Akureyri standi ekki og falli með oddvitasætinu, hann sé varaþingmaður og hugur hans standi ekki síður til metnaðar á landsmálasviði. Hildur Friðriksdóttir segist ekki leggja áherslu á efsta sætið en þó efri sæti. Hermann Arason segist gefa kost á sér í 1.-3. sætið. Hann stígi nú nýtt skref með því að gefa kost á sér í pólitík.
Níu manns bjóða sig fram í fimm efstu sæti á lista VG á Akureyri til sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara í vor. Þau eru: Edward H. Huijbens, Hermann Arason, Hildur Friðriksdóttir, Kristín Sigfúsdóttir, Inga Sigrún Atladóttir, Ólafur Kjartansson, Sóley Björk Stefánsdóttir, Valur Sæmundsson og Vilberg Helgason. Kosið verður í 5 efstu sætin á valfundi þann 22. febrúar kl. 20.00. Kjörgengir eru allir þeir sem eru félagar í VG og eru með kosningarétt á Akureyri, Hrísey og GrímseyKynning á frambjóðendum fer fram eftir viku, fimmtudagskvöldið 13. febrúar kl. 20.00 í Brekkukoti, Brekkugötu 7b. Lokadagur til að skrá sig í Vinstrihreyfinguna grænt framboð til að geta tekið þátt í valfundinum er 12. febrúar.
-BÞ

