Prófkjör Sjálfstæðismanna í dag

Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðismenn ganga að kjörborðinu í dag og velja sér nýtt fólk til að leiða listann í komandi sveitarstjórnarkosningum. 11 eru í framboði, 8 karlar og 3 konur.

Oddviti Sjálfstæðismanna frá því í síðustu kosningum sagði af sér eftir síðustu kosningar og 2. maður á þeim lista, Ólafur Jónsson býður sig ekki fram að þessu sinni, svo ljóst er að listinn verður leiddur af nýju fólki næstu fjögur árin. Í síðustu skoðanakönnun í nóvember mældist Sjálfstæðisflokkurinn stærsta stjórnmálaaflið í bænum og með þrjá bæjarfulltrúa.

Gunnar Gíslason, fræðslustjóri, og Njáll Trausti Friðbertsson, flugumferðarstjóri, eiga hvað mesta möguleika á að hreppa efsta sæti listans. Kosið er í Oddeyrarskóla frá kl 10:00 - 18:00 Búist er við fyrstu tölum fljótlega upp úr 19:00

Agnir og ljós

Listakonurnar Mireya Samper og Mary Zompetti opna í dag hvor sína sýninguna, annars vegar í Gallerý Hvítspóa í Brekkugötunni og hins vegar í Populus ... Lesa »

Ólympíumenntskælingar

Nú er orðið ljóst að Menntaskólinn á Akureyri mun eiga fulltrúa á Alþjóðlegu Ólympíukeppninni í stærðfræði í Höfðaborg í Suður-Afríku og á Alþjóðlegu ... Lesa »

Sauðárkrókur. Mynd úr safni.

Atvinnulífssýning og Sæluvika á Sauðárkróki

Um helgina stendur yfir atvinnulífssýningin „Skagafjörður - lífsins gæði og gleði“ í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Eins og segir í fréttatilkynningu ... Lesa »

Bogfimisetrið opnar á Akureyri

Bogfimisetrið ehf mun opna bogfimisal til almennra nota á Akureyri í næstu viku. „Íslandsmeistaramótið er í gangi núna fyrir sunnan og þess vegna ... Lesa »

Alþjóðlegt konukaffi í Listagili

Alþjóðlegt konukaffi verður haldið í Listagili á morgun, laugardaginn 26. apríl. Samkomurnar eru nú orðnar að föstum lið í starfsemi Alþjóðastofu ... Lesa »

Uglan auglýsir styrki

Uglan, Hollvinasjóður Menntaskólans á Akureyri, auglýsir nú styrki til umsóknar. Styrkir hafa úr sjóðinum hafa nú verið veittir kennurum og nemendum ... Lesa »

Suðurflug opnar á Akureyrarflugvelli

Starfsstöð Suðurflugs hefur opnað á Akureyrarflugvelli. Suðurflug ehf hefur starfað á Keflavíkurflugvelli í 42 ár, fyrst sem leiguflugfélag og ... Lesa »

Geimdósin opin

Í Listagilinu stendur Geimdósin - gallerí og vinnustofa í umsjón Heklu Bjartar Helgadóttur, myndlistarkonu. Upp á síðkastið hefur Hekla fengist við ... Lesa »

Tækninám á háskólastigi á Akureyri

Í lok mars var undirritaður samningur VMA, Keilis í Reykjanesbæ og Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar um að hefja tækninám á háskólastigi frá og með ... Lesa »

Nýr ritstjóri Vikudags

Vikudagur hefur ráðið Þröst Erni Viðarsson sem nýjan ritstjóra og tekur hann við starfinu í byrjun júní. Þröstur er menntaður fjölmiðlafræðingur frá ... Lesa »

Verkfalli aflýst

Félag háskólakennara á Akureyri og Háskólinn á Akureyri hafa komist að samkomulagi um gerð stofnanasamnings. Frá þessu segir á síðu háskólans. Gert er ... Lesa »

Árekstur á Eyjafjarðarbraut

Árekstur varð á gatnamótum rétt hjá Leirubrúnni við Eyjafjarðarbraut eystri í dag. Tveir fólksbílar skullu saman og valt annar þeirra á hliðina. Einn ... Lesa »

Vorkoman í Ketilhúsi

Margt var um manninn í Ketilhúsinu þegar hin árlega Vorkoma Akureyrarstofu var haldin hátíðleg í dag og veitt voru verðlaun og ... Lesa »

Glerárdalsvirkjun

Á fundi skipulagsnefndar þann 16. apríl síðastliðinn var deiliskipulag virkjunar á Glerárdal rætt. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Minjastofnun ... Lesa »

Close
Please support the site
Fylgstu með okkur á facebook líka!